Guðmundur Karl Atlason

Er sérfræðingur netkerfa hjá rekstarlausnum Advania.

Hvernig spilar þjónustan inn í þitt starf?

Þjónusta er mjög stór þáttur í starfi mínu, netkerfi er stór partur í starfi viðskiptavina og mikilvægt taka á vandamálum sem koma upp hratt og örugglega einnig er mikilvægt að valda ekki raski daglegum rekstri við breytingar þess vegna notum við breytingarbeiðnir og rýni þegar um stórar breytingar er að ræða.

Við notum spjallforrit með rásum og einnig getum við sent skilaboð á milli okkar beint þannig að ef okkur vantar einhverjar upplýsingar eða ráð þá er lítið mál að ná sambandi við aðra starfsmenn. Samvinnan er mjög góð á okkar sviði og er mín reynsla að alltaf hægt að sækjast eftir aðstoð eða góðum ráðum.

Guðmundur sem er starfsmaður ykkar á Akureyri er topp eintak. Mikil hjálpsemi og þekkir sitt fag. Haldið fast í þennan.

Ingi Magnús Gíslason, Öryggismiðstöðin

Hvað er góð þjónusta fyrir þér?

Að vera í góðum samskiptum við viðskiptavin og hafa hann upplýstan um stöðu á málinu. Jákvætt viðmót, þjónustulund og einnig þekkingar á viðfangsefni er mikilvægt.

Eftirfylgni með vandamálum sem voru leyst er einnig mikilvæg og oft sem eitthvað annað kemur þá upp sem gleymdist í fyrra símtali eða málið var ekki leyst að fullu. Þjónustumenningin á sviðinu okkar er góð, það eru allir mjög áhugasamir um að veita góða þjónustu. Þegar málum er lokað þá geta viðskiptavinir valið broskall ef gekk vel (Happy or Not), síðan eru reglulegar þjónustukannanir gerðar sem er farið yfir.

Kynntu þér þjónustvegferð Advania

Ein áhrifamesta umbótin á þjónustu Advania var ákvörðunin um að gera jafn miklar kröfur um árangur í þjónustu og rekstri. Það þýddi að í hvert sinn sem árangur fyrirtækisins var mældur, var horft til upplifunar viðskiptavina af fyrirtækinu.

Sjáðu hvernig við náðum árangri í þjónustu