Microsoft 365

Microsoft 365 er heildstæð lausn sem einfaldar reksturinn, eykur öryggi og hjálpar til við að mæta kröfum GDPR. Lausnin sameinar Office 365, Windows 11 og Enterprise Mobility + Security og veitir eitt stjórnborð til að stýra notendum, tækjum og öryggismálum.

Spjöllum saman
allt sem þú þarft

Innifalið í Microsoft 365

Office
Alltaf nýjasta útgáfa af Word, Excel, PowerPoint, OneNote, Access og Teams.
Tölvupóstur og dagatal
Vertu í góðu sambandi með nýjustu útgáfum af Outlook og Exchange.
OneDrive gagnageymsla
Stýrðu gögnum óháð staðsetningu með OneDrive gagnageymslu.
Gagnaverndarráðstafanir
Tryggir viðskiptagögn á persónulegum tækjum sem og tækjum fyrirtækisins.
Öruggasta útgáfa Windows
Fáðu uppfærslu upp í Windows 11 úr Windows 7, 8, 8.1 Pro og 10.
Öflugar varnir
Fáðu vernd fyrir hættulegum viðhengjum, hlekkjum og öðrum óværum.
Stýring og innleiðing
Betri stjórnun á nýjum og núverandi tölvum en áður hefur þekkst.
Áreiðanleiki og þjónusta
99.9% uppitími ábyrgður og þjónusta allan sólarhringinn.

Microsoft 365 Copilot

Copilot er gervigreindartól sem eykur framleiðni og skilvirkni í ýmsum Microsoft 365 forritum. Copilot notar gervigreind til að veita notendum stuðning við dagleg verk með því að bjóða upp á sjálfvirkar tillögur, innsýn, og aðstoð við sköpun efnis.

Nýttu þér krafta gervigreindarinnar við hin ýmsu verkefni í Word, Excel, Powerpoint, Teams og Outlook, ásamt öðrum daglegum verkefnum.

Sjá nánar
allt í einum pakka

Skilvirk og örugg umgjörð um reksturinn

Office 365

Office pakkinn, tölvupóstþjónusta, gagnasvæði og lausnir sem einfalda verkstýringu, hópavinnu og upplýsingagjöf á vinnustaðnum.

Windows 11

Windows 11 er öflugasta og umfangsmesta Microsoft stýrikerfi allra tíma. Hönnunin gerir vinnuna auðveldari því hægt er að aðlaga uppsetningu að þörfum notanda.

Enterprise Mobility + Security

Auðkenning og aðgangsstýring, verndun gagna og upplýsinga, vörn gegn ógnum og fleira.

Microsoft Teams

Microsoft Teams er hluti af Microsoft 365 og heldur utan um öll verkefni á einum stað. Frábær samvinna, hvaðan sem er.

Sjá nánar

SharePoint

SharePoint er vefmiðaður vettvangur frá Microsoft sem gerir teymum kleift að vinna saman, deila skjölum og skipuleggja upplýsingar á öruggan hátt.

Afritun á Microsoft 365

Advania býður upp á alhliða afritunarþjónustu fyrir Microsoft 365 með áherslu á öryggi, landfræðilega aðgreiningu og hagkvæmni. Afritunarþjónusta Advania veitir þér örugga og áreiðanlega afritun gagna frá erlendum skýjaþjónustum til Íslands. Með okkar lausnum getur þú verið viss um að mikilvæg gögn séu alltaf varin og aðgengileg.

Sjá nánar

Treystu reyndum Microsoft 365 samstarfsaðila

Við hjá Advania höfum mikla reynslu af því að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að nútímavæða vinnustaði sína. Með fjölbreyttum verkefnum og nánu samstarfi okkar við Microsoft er okkur kleift að þróa úrval af Microsoft 365 ráðgjafaþjónustum til að mæta þörfum sem flestra fyrirtækja.

Advania sér til þess að innleiðing Microsoft 365 verði árangursrík fyrir þig.

Spjöllum saman

Afhverju Microsoft 365?

Microsoft 365 einfaldar fyrirtækum að tengja fjarvinnandi starfsmenn, straumlínulaga ferla og veitir aukið gagnaöryggi. Advania hefur stutt fyrirtæki af öllum stærðum við að innleiða Microsoft 365 óháð flækjustigi þeirra.

Hvort sem þú ert í flýti að koma þér af stað eða þarft stuðning við stórt nútímavæðingarverkefni, getum við skipulagt leið þína að varanlegri stafrænni umbreytingu. Microsoft 365 er lausnin fyrir nútíma fyrirtæki sem vilja hámarka árangur og sveigjanleika.

Viltu vita meira?

Spjöllum saman

Viltu vita meira um Microsoft 365? Sendu okkur fyrirspurn.