Blogg - DD.12.YYYY

BitCoin námurnar á Reykjanesi

Síðasta sumar opnuðum við hjá Advania tvö ný gagnaver á Reykjanesi sem eru sérstaklega hugsuð fyrir það sem á ensku kallast High Performance Computing (HPC).

Síðasta sumar opnuðum við hjá Advania tvö ný gagnaver á Reykjanesi sem eru sérstaklega hugsuð fyrir það sem á ensku kallast High Performance Computing (HPC) sem má þýða sem afkastamikla tölvuvinnslu. Nýju gagnaverin á Fitjum köllum við Mjölni og eru þau viðbót við Thor gagnaverið sem við rekum í Hafnarfirði. Dæmi um HPC verkefni af þessu tagi er til dæmis hýsing á norrænu ofurtölvunni sem vísindamenn í Skandinavíu nýta í sínum rannsóknum. Þar er mikil áhersla á mikla reikni- og afkastagetu. 
 

Útsynningur góður fyrir ofurtölvurnar

Með nýja gagnaverinu fjölgar þeim tölvum sem Advania hýsir fyrir viðskiptavini sína í gagnaverin upp í 3,300 en af þeim eru 2,500 í Mjölni. Nýja gagnaverið notar um 8,5 megavött að jafnaði en lögð er áherslu á góða orkunýtingu. Svokallað PUE gildi er aðeins 1.05 sem verður að teljast mjög gott á heimsvísu og er í raun næstum því einstakt. PUE stendur fyrir Power Usage Effectiveness og er mælikvarði á nýtingu orkunnar sem fer í raunverulega vinnslu tölvubúnaðarins í gagnaverinu. Þessi hagkvæmna orkunotkun kemur til af því að við nýtum náttúrulega kælingu en eins og allir vita er kalt og að jafnaði frekar vindasamt á Íslandi og við nýtum það til hins ítrasta. Kalt loft er tekið inn um hliðarnar á gagnaverunum og kalda loftið leitt eftir „köldum gangi“ að rekkunum með tölvubúnaðinum. Þegar loftið hefur hitnað er það leitt í gegnum „heitan gang“ og út í gegnum túður á þaki. Heita loftið er einnig notað til að jafna hitastig inn í gagnaverunum.
 

Ör vöxtur í Bitcon og Bitcoin námugreftri

Svokalluð „Bitcoin mining“ eða Bitcoin námavinnsla er ört vaxandi og mikilvægur þáttur í gagnaversiðnaði nútímans. Bitcoin rafeyririnn kom fyrst til sögunnar í janúar 2009 og í desember 2014 hefur þessi nýi gjaldmiðill náð 4 milljarða dollara markaðsvirði samkvæmt vefnum
 

CoinMarketingCap. 

Hvernig virkar Bitcoin?

Eins og svo margt annað á Internetinu sem hefur valdið miklum breytingum þá keyrir Bitcoin rafeyrir á svokölluðu jafningjaneti (Peer to Peer). Notandi stofnar Bitcoin veski á tölvu eða snjalltæki. Þá getur hann tekið á móti eða framkvæmt greiðslur á svipaðan hátt og þegar tölvupóstur er sendur og mótttekin. Haldið er utan um allar viðskiptafærslur í kerfinu í rafrænni höfuðbók sem kallast „Block Chain“ 

 

 


Nýr Bitcoin rafeyrir kemur inn í kerfið með svokallaðri námuvinnslu (mining). Í stuttu máli gengur námavinnsla út á að öflugur tölvubúnaður leysir stærðfræðijöfnur. Þær verða sífellt flóknari eftir því sem tíminn líður enda er Bitcoin kerfið þannig úr garði gert að fjöldi útgefinna Bitcoin rafpeninga er takmarkaður. Hjá Advania hýsum við mikið af tölvubúnaði fyrir viðskiptavini sem stunda Bitcoin námugröft. Það er því ekki fjarri lagi að kalla gagnaverin okkar námur þó ekki séu þar notaðar gröfur, hakar eða skóflur heldur öflugar tölvur!  Nánari útlistun á hvernig Bitcoin virkar má finna á vefsvææðinu Bitcoin.org. 
 

Mikill vöxtur framundan

  • Fjöldi rafrænna peningafærslna fór upp í 283 milljarða árið 2010
  • Þjónustuaðilar aðrir en bankar sem bjóða greiðsluþjónustu hafa aukið markaðshlutdeild sína upp í 21% á árinu 2013
  • Árið 2013 fór fjöldi greiðslna á netinu yfir 30 milljarða og verðmæti þeirra var rúmlega 2 trilljónir dollara
  • Farsímagreiðslum fjölgaði um helming á árinu 2013. Þá var fjöldi þeirra um 17 milljarða færslum að verðmæti 150 milljarða dollara

Heimild: CapGemini , Efma, RBS. The 8th Annual World Payments Report 2012. 

Standist spár um aukna notkun og eftirspurn eftir Bitcoin rafeyri mun þessi þáttur tölvuvinnslu aukast mjög í gagnaverum okkar. Margt bendir til þess að sú verði raunin.

Hér fyrir neðan er stutt myndband sem við gerðum um byggingu gagnaverana síðastliðið sumar. 

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir

Blogg
30.01.2013
Hvernig eru snjalltækin að birta vefina okkar? Er skalanleg vefhönnun enn ein tískubóla í vefhönnun eða er hún komin til að vera?
Blogg
23.01.2013
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
Blogg
16.01.2013
Hjá Advania hafa verið þróuð tvö tímaskráningarkerfi, Bakvörður og Vinnustund.
Blogg
09.01.2013
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Blogg
12.12.2012
Gæði gagna eru mörgum hugleikin en misjafnt getur verið hversu vel gengur að sigrast á lélegum gæðum gagna.
Blogg
05.12.2012
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Blogg
29.11.2012
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Blogg
22.11.2012
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle kerfið fyrir íslenska ríkið liggur nú fyrir.
Blogg
21.11.2012
Oft er talað um að hjarta fyrirtækis sé birgðirnar. Án birgða flæðir ekki fjármagn inn í fyrirtækið og ef birgðir eru of miklar þá er of mikið fjármagn bundið í birgðunum. Eins mikilvægt og það er fyrir okkur mennina að hugsa vel um hjartað þá gildir það sama um birgðirnar.
Blogg
14.11.2012
Dagana 15. til 17. október hélt þýska fyrirtækið Software AG (SAG) sína árlegu ProcessWorld ráðstefnu í Orlando á Flórida.
Blogg
07.11.2012
Dagsdaglega hugsa fáir um varnaðarorð um notkun snjallsíma. En hver er hin raunverulega áhætta við notkun snjallsíma?
Blogg
26.10.2012
Í dag föstudaginn 26. október hefur Microsoft formlega markaðssetningu á Windows 8. Nýtt stýrikerfi Windows RT er komið út og einnig nýjar vélar sem hlotið hafa nafnið Microsoft Surface.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.