Blogg - DD.10.YYYY

Allt sem þú vildir vita um Windows 8 en þorðir ekki að spyrja um

Í dag föstudaginn 26. október hefur Microsoft formlega markaðssetningu á Windows 8. Nýtt stýrikerfi Windows RT er komið út og einnig nýjar vélar sem hlotið hafa nafnið Microsoft Surface.

Þó að Windows 8 hafi verið í boði fyrir fyrirtæki í nokkurn tíma þá hefst sala og markaðssetning fyrir alvöru hjá Microsoft og samstarfsfélögum 26. október. Nokkur nýmæli eru við þessa útgáfu Microsoft á nýju stýrikerfi.

Nýtt skýrikerfi og nýjar vélar

Microsoft gefur út nýja útgáfu af Windows stýrikerfinu sem kallast Windows RT og hefur jafnframt sölu á nýjum framúrstefnulegum tölvum sem kallast Microsoft Surface. Afgreiðsla og dreifing á þeim er í höndunum á Microsoft, að minnsta kosti til að byrja með. Ísland er því miður ekki komið á lista yfir þau lönd þar sem boðið verður upp á Microsoft Surface. 

 

Windows RT

Windows RT útgáfan er gerð fyrir aðra örgjörva en venjulegt Windows stýrikerfi og fæst aðeins uppsett á vélum frá vélbúnaðarframleiðendum eins og Microsoft og Dell. Microsoft kemur með þessu til móts við kröfur markaðarins um sérhæfðar lausnir fyrir vel skilgreindar þarfir svo sem "Tablet" og orkunýtnari tækjabúnað og lausnir í skýinu (e. cloud).

Nokkur atriði um Windows RT vélar

Markvert Orkusparandi örgjörvar svo sem NVIDIA T30, Atom eða ARM. 
  Þráðlaus samskipti, Bluetooth, WiFi, 3G/LTE ofl.
  Yfirleitt með snertiskjá og á einhverskonar "Tablet" eða "Hybrid" formi
  Langur endingartími rafhlöðu, að lágmarki 8 til 10 tímar 
  Úrval af hugbúnaði fylgir, svo sem Office RT og Skype
  Margir framleiðendur, mikið úrval og lág verð
Öpp
Hugbúnað er aðeins hægt að nálgast í gegnum "Store"
Tæki Hægt að taka myndir og vídeó. henta vel fyrir afþeyingu, til dæmis að spila bíómyndir og tónlist
  USB, MicroSDXC, vídeo út, heyrnartól og port svo sem "docks"
Skynjarar Áttaviti, hreyfiskynjari, ljósnemar og GPS

Windows 8

Að sjálfsögðu kemur nú út hefðbundin uppfærsla á Windows. Microsoft gefur út tvær útgáfur af Windows 8: Windows 8 fyrir heimili og Windows 8 Professional fyrir heimili, skóla og fyrirtæki. Þeir sem keypt hafa Windows stýrikerfi og tölvur með Windows frá því í júní 2012 stendur til boða að fá uppfærslu upp í Windows 8 Professional fyrir 2.400 krónur. Þeir notendur sem eiga eldri Windows vélar sem geta keyrt Windows 8 geta á næstu mánuðum uppfært vélina sína í Windows Professional fyrir 9.900 kr. með VSK.

Nokkrar Windows 8 nýjungar

Notendaviðmót Modern UI með „Live Tiles“ - ný nálgun á notendaviðmót
  Gamla umhverfið verður sérstakt „App“ sem kallast „Desktop“
  Viðmótið er hannað til að gefa persónulega yfirsýn á öllum stærðum og gerðum á skjám
Snerting
Snertiskjáir eru framtíðin. Fullur stuðningur við „Multitouch“ tæki sem skilja „Gestures“ eða samþættar hreyfingar, t.d. að „klípa“ til að minnka myndir
Hraði
Minni kjarni, færri aðgerðir ásamt nýjungum í ræsingu og stjórnun gera stýrikerfið mun hraðvirkara
  „Charms“ er nýr staðall sem leyfir notanda að breyta stillingum á sama hátt fyrir öll forrit og sparar þannig tíma.
  Með nýjum „Taskmanager“ er enn auðveldara að sjá hvað forrit nýta mikið af minni, diskum og neti.
Öruggi Windows 8 nýtir nýjustu tækni til að gera tölvuna öruggari á Netinu. Einnig viðbótarlausnir til að loka aðgöngum og dulkóða gögn svo óviðkomandi komist ekki í innihaldið. T.d. "Picture Password"
Fyrir fyrirtæki
Með "Software Assurance" ofan á Windows leyfið fást viðbótar lausnir og tól til að aðlaga umhverfið að þörfum fyrirtækja og notenda. T.d. Hyper-V og "Windows To Go"

Dell og Windows 8

Þessa dagana er Dell að hefja sölu á sérhönnuðum tölvum sem fullnýta nýjustu möguleika í Windows 8. Nánar um Dell og Windows 8. Dell verður með fjölbreytt úrval tölvubúnaðar sem keyrir á Windows 8:

  • "All in One" vélar með snertiskjá
  • "Hybrid" vélar sem eru bæði spjaldtölvur og ferðavélar
  • Vélar með snertiskjá sem snýst eftir því hvernig notandinn vill hafa hann
  • "Venjulegar gamaldags" tölvur 

             

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.