Fréttir - 14. febrúar 2021

Goldman Sachs kaupir meirihluta í Advania

Goldman Sachs hefur skrifað undir bindandi kauptilboð í meirihluta hlutafjár í upplýsingatæknifyrirtækinu Advania

Goldman Sachs hefur skrifað undir bindandi kauptilboð í meirihluta hlutafjár í upplýsingatæknifyrirtækinu Advania.

 

• Sjóður í eigu fjárfestingabankans Goldman Sachs hefur fest kaup á meirihluta í Advania. Sjóðurinn bætist í hluthafahópinn sem samanstendur meðal annars af VIA Equity og lykilstjórnendum á Norðurlöndum.

 

• Advania hefur öðlast sterka stöðu á öllum Norðurlöndum sem þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni.

 

• Fyrirtækið hefur vaxið um ríflega 20% á ári, undanfarin fimm ár. Vöxturinn er öflugu starfsfólki að þakka sem styrkt hefur langtíma sambönd við viðskiptavini ásamt þeim öru tæknibreytingum sem hafa átt sér stað að undanförnu. 

 

• Advania velti yfir 76 milljörðum króna árið 2020.

 

• Markmið nýs eigendahóps er að styðja við núverandi stefnu fyrirtækisins og frekari vöxt þess. 

 

Advania á rætur að rekja til ársins 1939 þegar Einar J. Skúlason stofnaði viðgerðarþjónustu í Reykjavík. Með samruna nokkurra upplýsingatæknifyrirtækja á Íslandi, Svíþjóð og Noregi árið 2012 varð Advania til í núverandi mynd. Fyrirtækið er nú með öfluga starfsemi á öllum Norðurlöndunum og veitir viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu í upplýsingatækni. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir hraðan vöxt og einstaka nálgun á þjónustu við viðskiptavini. 


Sjóður í eigu fjárfestingabankans Goldman Sachs, ásamt danska fjárfestingasjóðnum VIA Equity, lykilstjórnendum á Norðurlöndum og nokkrum smærri hluthöfum hafa gert bindandi kauptilboð í meirihluta hlutafjár Advania. Kaupin eru til marks um þá sterku stöðu sem fyrirtækið hefur skapað sér. Með aðgengi að auðlindum Goldman Sachs og VIA Equity er Advania vel í stakk búið til að vaxa enn hraðar, með innri vexti, kaupum og sameiningum. Velgengni fyrirtækisins byggir á því að laða til sín hæfileikaríkt fólk og viðhalda traustum viðskiptasamböndum.

Velta Advania árið 2020 var yfir 76 milljarðar króna. Fyrirtækið hefur vaxið um meira en 20 % ár hvert síðast liðin fimm ár. Hjá Advania starfa um 1.400 manns á 27 starfsstöðum um öll Norðurlönd.

 

„Goldman Sachs er einn virtasti fjárfestingabanki heims og hefur reynslu af árangursríkum fjárfestingum í tæknigeiranum. Við lítum á það sem gæðastimpil að fá þau inn í hluthafahópinn og erum mjög spennt fyrir vegferðinni framundan. Við erum sannfærð um að þetta opni nýja og spennandi möguleika fyrir starfsfólk okkar. Stefna Advania er óbreytt og við verðum áfram traustur samstarfsaðili í upplýsingatækni og fyrirmyndar vinnustaður,” segir Mikael Noaksson, forstjóri Advania á Norðurlöndunum.

Mikael Noaksson forstjóri Advania á Norðurlöndunum.
Mikael Noaksson forstjóri Advania á Norðurlöndum.


„Við erum mjög spennt fyrir þessu nýja samstarfi. Við höfum fylgst með Advania um nokkurt skeið og kynnt okkur það vel. Það sem heillaði okkur mest var sterk menning sem skapast hefur innan fyrirtækisins og það góða orð sem fer af því. Okkar markmið er að styðja Advania í að þroska sína sérstöðu og stuðla að frekari vexti þess,“ segir Michael Brunn, meðeigandi hjá Goldman Sachs.

Benjamin Kramarz er meðeigandi í VIA Equity sem verður áfram í eigendahópi Advania; „Við höfum verið hluthafar í Advania í rúm tvö ár og hlökkum til að starfa áfram með þessu frábæra fyrirtæki. Stjórnendum þess hefur tekist vel til við að koma Advania í leiðandi stöðu á Norðurlöndunum og við erum spennt að halda áfram á þeirri braut með frábæru teymi,” segir Kramarz.


Kaupin eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda.

Raymond James var ráðgjafi Advania í söluferlinu.

 

 

 

Fleiri fréttir

Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.