Fréttir - 18. ágúst 2021

Heimir Fannar nýr framkvæmdastjóri Advania

Heimir Fannar Gunnlaugsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hann hefur starfað hjá Microsoft síðan 2013, lengst af sem forstjóri.

Heimir Fannar Gunnlaugsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hann hefur starfað hjá Microsoft síðan 2013, lengst af sem forstjóri.

Heimir hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Undanfarin tvö ár hefur hann aðstoðað alþjóðleg fyrirtæki við að nýta viðskiptalausnir Microsoft. Þar á undan stýrði hann skrifstofu Microsoft á Íslandi í sex ár. Advania hefur um árabil boðið upp á viðskiptalausnir Microsoft, bæði Business Central og Dynamics365. Hjá fyrirtækinu starfar fjölmennur hópur Microsoft- sérfræðinga.

Heimir tekur við af Einari Þórarinssyni sem hverfur til annarra starfa innan Advania og verður Heimi innan handar fyrst um sinn.
„Ég hlakka mikið til að kynnast betur samstarfsfólki hjá Advania og miðla af reynslu minni. Ég veit að Advania gerir frábæra hluti bæði á Íslandi og Norðurlöndum og ég vona innilega að ég geti hjálpað til á þeirri vegferð. Það heillar mig að leiða gríðarlega öflugt teymi, landsliðsfólk í hverri stöðu, sem hefur náð frábærum árangri. Ég veit að Advania hefur verið í lykilhlutverki í stafrænni umbyltingu íslenskra fyrirtækja og ég vona að reynsla mín nýtist til að halda því áfram,“ segir Heimir.

„Það er mikill styrkur að fá Heimi í lið með okkur. Hann býr yfir tengslaneti, þekkingu og reynslu sem styrkir þjónustu okkar. Tæknin virðir engin landamæri og þess vegna held ég að reynsla Heimis af Microsoft gagnist okkar viðskiptavinum gríðarlega mikið. Einari Þórarinssyni þökkum við frábært starf. Hann hefur, ásamt teymi viðskiptalausna, lyft grettistaki í að skýjavæða lausnir okkar og efla þjónustuna,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania.


Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.