Fréttir - 22. desember 2021

Styrkur til náms í kerfisstjórnun

Advania, NTV og Promennt hafa tekið höndum saman til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu.

Advania, NTV og Promennt hafa tekið höndum saman til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu.

Því viljum við breyta enda gegna kerfisstjórar mikilvægu hlutverki hjá fyrirtækjum og nauðsynlegt að sem fjölbreyttastur hópur fólks komi að því hlutverki. Hvetjum við því fólk af öllum kynjum til að kynna sér starf kerfisstjóra og möguleikana sem nám í faginu getur fært.

Starfið er fjölbreytt og hentar vel þeim sem hafa gaman af því að leysa úr vandamálum og vera í samskiptum við fólk. Starfið bíður uppá sveigjanleika og því er hægt að sinna hvaðan sem er.

Nám í kerfisstjórnun er kennt hjá NTV og Promennt og tekur eitt ár. Hjá Promennt heitir námið Framabraut - tæknistjórnun. Í báðum skólum er um að ræða bæði staðnám og fjárnám sem margir stunda meðfram fullu starfi. Atvinnumöguleikar útskrifaðra úr náminu eru miklir. Góður kerfisstjóri er mjög eftirsóttur á vinnumarkaði.

Markmið með átakinu er að auka áhuga fólks á kerfisstjórnun og tryggja að fleiri sæki sér menntun til að gegna þessu mikilvæga starfi.

Advania, NTV og Promennt bjóða nú fjórum konum styrk sem nemur helmingi skólagjalda í skólunum.

Áhugasamt fólk er beðið um að skrifa um það bil 300-400 orða greinargerð með umsókninni um hvers vegna það hafi áhuga á náminu og lýsingu á því hvers vegna það ætti að fá styrkinn. Nauðsynlegt er að taka fram í umsókn til skólanna að sótt sé um Advania-styrkinn.

Nánar um námið í Promennt og NTV

Hér má heyra upplifun þeirra Thelmu Sifjar Sigurjónsdóttur og Helgu Árnadóttur af því að sækja sér nám í kerfisstjórnun.

  

*Athugið að mikilvægt er að láta skólana vita tímanlega hvort þú hyggist þiggja plássið í náminu. 

Fleiri fréttir

Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Blogg
07.10.2015
Borgir heims stækka ört. Það þarf að bregðast við þessu, til dæmis með breyttu eða nýju skipulagi, og með því að styrkja alla innviði.
Blogg
29.09.2015
Við hjá Advania leggjum fjölmörgum fasteignafélögum til hugbúnað sem einfaldar verulega rekstur þeirra og starfsemi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.