Fréttir - 10. ágúst 2021

Umfang Advania tvöfaldast

Advania stefnir á að verða eitt stærsta upplýsingatæknifyrirtæki í Norður-Evrópu og hefur fest kaup á norræna fyrirtækinu Visolit.

Advania stefnir á að verða eitt stærsta upplýsingatæknifyrirtæki í Norður-Evrópu og hefur fest kaup á norræna fyrirtækinu Visolit.

Með samruna Advania og Visolit verður fyrirtækið með um 2400 starfsmenn og 130 milljarða króna veltu. Sameinaðir kraftar svo fjölmenns hóps sérfræðinga gerir fyrirtækinu kleift að bjóða framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf um upplýsingatækni, sérsniðna að hverjum viðskiptavini.

Visolit er leiðandi á sviði upplýsingatækni og skýjalausna á fyrirtækjamarkaði í Noregi og Svíþjóð. Það er svipað að stærð og Advania-samsteypan, með um 1200 starfsmenn og starfsstöðvar í Noregi og Svíþjóð. Með kaupum á Visolit tvöfaldast því starfsmannafjöldi Advania. Stefnt er á áframhaldandi öran vöxt.

Markmið Advania er eftir sem áður að vera traustur samstarfsaðili fyrirtækja um upplýsingatækni og gera þau í stakk búin til að mæta áskorunum framtíðarinnar með stafrænum lausnum.
Advania vill áfram vera framúrskarandi vinnustaður og laða til sín hæfileikaríkt fólk með ólíka þekkingu og reynslu. Fyrirtækinu verður dreifstýrt til að tryggja þekkingu á þörfum viðskiptavina í hverju landi. 

„Við erum full tilhlökkunar að sameinast Visolit og verða þannig enn öflugra upplýsingatæknifyrirtæki á Norðurlöndunum. Með því að sameina krafta okkar getum við boðið viðskiptavinahópi okkar beggja breiðari og betri þjónustu,“ segir Mikael Noaksson, forstjóri Advania á Norðurlöndunum.

„Við erum stolt af uppbyggingu okkar á Visolit siðan 1997 og þeirri stöðu sem við höfum náð í Noregi og Svíþjóð. Með sameiningu við Advania hefjum við nýja og spennandi vegferð á norrænum markaði og getum gert enn betur við viðskiptavini okkar,” segir Terja Mjøs, forstjóri Visolit.

Advania hefur komist að samkomulagi við IK Investment Partners, um kaupin á Visolit, af IK VII Fund og öðrum hluthöfum.
Sjóðir í eigu Goldman Sachs og aðrir hluthafar Advania, auka hluti sína í hinu sameinaða norræna upplýsingatæknifyrirtæki. IK IX Fund kemur inn í hluthafahópinn.
Goldman Sachs Bank Europe SE, veitti Advania ráðgjöf í kaupferlinu. Raymond James var ráðgjafi Visolit.

Áætlað er að viðskiptin verði frágengin fyrir árslok 2021 en þau eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda í Noregi og Svíþjóð.

 

Fleiri fréttir

Fréttir
10.03.2026
Lager, verkstæði og vöruafhending færðu sig um set og opnuðu á nýjum stað í Skútuvogi 12 mánudaginn 30. mars.
Blogg
09.03.2026
Gervigreind er orðin hluti af stefnu flestra fyrirtækja. Hún á að auka skilvirkni, bæta þjónustu og styðja betri ákvarðanatöku. En ein lykilspurning gleymist oft. Á hvaða gögnum á gervigreindin að byggja? Svarið liggur í CRM.
Blogg
06.03.2026
Advania á Íslandi hefur nú náð SBTi: Scope 3 losunarmarkmiðinu. SBTi (Science Based Targets initiative) er alþjóðlegt viðmið sem hjálpar fyrirtækjum að setja raunhæf losunarmarkmið byggð á loftslagsvísindum, í takt við 1,5°C markmið Parísarsamkomulagsins.
Blogg
05.03.2026
Jabra hefur kynnt til leiks Evolve 3 seríuna. Glænýja kynslóð heyrnartóla sem sameinar hágæða hljóð, smekklega hönnun og háþróaða tækni fyrir bæði vinnu og afþreyingu. Tvær tegundir eru komnar til Advania: Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (ofan á eyru), og báðar sporta nýrri nálgun á hönnun og virkni.
Fréttir
25.02.2026
Advania hefur fest kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv, ört vaxandi félagi sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Evolv hefur þróað og innleitt lausnir sem nýta stafrænt vinnuafl til að auka skilvirkni og gæði og hefur frá stofnun þess árið 2020 þjónustað fjölda fyrirtækja og stofnana, þvert á starfssvið.
Fréttir
24.02.2026
„Helstu kostirnir við H3 eru auðvitað að það er mjög dýnamískt þegar kemur að halda utan um allt sem snýr að mannauðsmálum og því sem snertir starfsmanninn í heild, frá launum eða frá ráðningu yfir í starfslok,“ segir Kristján Þór Magnússon, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis í Mosfellsbæ.
Blogg
23.02.2026
Nú nálgast sumarið hratt og mörg fyrirtæki farin að huga að ráðningu sumarstarfsfólks. Á mörgum vinnustöðum verður oft snúið að finna rétta búnaðinn, enda þarf að finna rétta jafnvægið á milli kostnaðar, notagildis og öryggis. Við höfum tekið saman nokkur ráð sem gott er að hafa í huga:
Blogg
17.02.2026
Advania hélt vel sóttan morgunverðarfund þar sem við kynntum nýjustu lausnir Verkada á sviði öryggis- og aðgangsstýringar. Áherslan að þessu sinni var sérstaklega lögð á aðgangsstýringu, samþættingu hennar við aðrar vörur Verkada og þann ávinning sem fyrirtæki fá þegar öll öryggistækni er komin inn í eitt, heilstætt og skýjabundið umhverfi.
Fréttir, Power Platform
16.02.2026
Á Viðskiptakerfadegi Advania þann 11. mars næstkomandi koma saman sérfræðingar Advania, viðskiptavinir og fulltrúar Microsoft til að ræða framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og opnar húsið klukkan 12:30.
Fréttir
11.02.2026
Ármann Jakob Pálsson sérfræðingur hjá Rekstrarlausnum Advania hefur hlotið sérstaka Community Ambassador viðurkenningu frá Red Hat.
Fréttir
09.02.2026
Um helgina fór UTmessan fram í 16. skipti í Hörpu. Advania var einn af samstarfsaðilum ráðstefnunnar og kynntum við meðal annars Signet lausnirnar, Skjöld og 90 daga gervigreindarhraðal Gervigreindarsetur Advania.
Fréttir
04.02.2026
„Hvað ætlar þitt fyrirtæki að gera í gervigreind?“ er líklega algengasta spurningin sem stjórnendur fyrirtækja hafa spurt og verið spurðir að síðastliðið ár. Gervigreindarsetur Advania hefur farið af stað með 90 daga hraðal þar sem markmiðið er að fyrirtæki taki skýr skref í átt að virðisaukandi nýtingu gervigreindar í rekstri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.