Fréttir - 24.2.2026 07:00:00

H3 er mikilvægur hlekkur í mannauðsmálum Mosfellsbæjar

„Helstu kostirnir við H3 eru auðvitað að það er mjög dýnamískt þegar kemur að halda utan um allt sem snýr að mannauðsmálum og því sem snertir starfsmanninn í heild, frá launum eða frá ráðningu yfir í starfslok,“ segir Kristján Þór Magnússon, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis í Mosfellsbæ.

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskipta- og kynningarstjóri Advania

„Við erum með 36 vinnustaði og launadeildin er á okkar sviði þannig að við sjáum það að reikna og greiða laun í hverjum mánuði og notum til þess  H3 mannauðslausnina frá Advania. H3 er auðvitað algjört kjarnakerfi í okkar starfsemi.“

Mannauðs- og starfsumhverfissvið Mosfellsbæjar geymir allar upplýsingar um mannauðinn í H3. Einnig nota þau Vinnustund og snjallsímaforritið Smástund. Reynslu Mosfellsbæjar af Mannauðslausnum Advania má heyra í spilaranum hér fyrir neðan

Mikill tímasparnaður

„Við erum að nota Vinnustund sem okkar viðverukerfi og það sparar okkur heilmikinn tíma í utanumhaldi í mannauðsdeildinni. Að taka út skýrslur varðandi viðveru, að halda utan um vinnuskil hjá fólki, halda utan um orlofsréttindi og annað auðvitað skiptir okkur mjög miklu máli, að það sé allt saman rétt.“

Kristján segir að fyrir þau hafi skipt miklu máli að nota H3 og Vinnustund saman.

„Það auðvitað heldur sameiginlega utan um stærstan partinn af því sem snýr að launum og viðveru sem er mjög stór hluti af því sem við erum að gera. Þannig að auðvitað sparar það okkur tíma að kerfin tali vel saman.“

„Samstarfið við Advania hefur gengið mjög vel. Oft er það þannig þegar maður tekur inn nýjar lausnir að maður svona gárar rétt yfirborðið en við erum markvisst að þykkja notkun kerfisins og munum nota það núna til þess að tala við öll okkar kerfi varðandi til að mynda leyfi starfsmanna inn í aðrar lausnir.“

Fleiri fréttir

Blogg
06.03.2026
Advania á Íslandi hefur nú náð SBTi: Scope 3 losunarmarkmiðinu. SBTi (Science Based Targets initiative) er alþjóðlegt viðmið sem hjálpar fyrirtækjum að setja raunhæf losunarmarkmið byggð á loftslagsvísindum, í takt við 1,5°C markmið Parísarsamkomulagsins.
Blogg
05.03.2026
Jabra hefur kynnt til leiks Evolve 3 seríuna. Glænýja kynslóð heyrnartóla sem sameinar hágæða hljóð, smekklega hönnun og háþróaða tækni fyrir bæði vinnu og afþreyingu. Tvær tegundir eru á leiðinni til Advania: Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (ofan á eyru), og báðar sporta nýrri nálgun á hönnun og virkni.
Fréttir
25.02.2026
Advania hefur fest kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv, ört vaxandi félagi sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Evolv hefur þróað og innleitt lausnir sem nýta stafrænt vinnuafl til að auka skilvirkni og gæði og hefur frá stofnun þess árið 2020 þjónustað fjölda fyrirtækja og stofnana, þvert á starfssvið.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.