Fréttir - 18. desember 2020

Úr atvinnuleysi í nám

Thelma Sjöfn Hannesdóttir, rafvirki og þriggja barna móðir frá Akranesi, var valin úr fjölmennum hópi umsækjenda til að hljóta styrk til náms í kerfisstjórnun. Thelma missti vinnuna í apríl og var einmitt að leita leiða til að afla sér nýrrar þekkingar og atvinnumöguleika.

Thelma Sjöfn Hannesdóttir, rafvirki og þriggja barna móðir frá Akranesi, var valin úr fjölmennum hópi umsækjenda til að hljóta styrk til náms í kerfisstjórnun. Thelma missti vinnuna í apríl og var einmitt að leita leiða til að afla sér nýrrar þekkingar og atvinnumöguleika.

 

Námsstyrkurinn sem Thelma hlýtur er liður í átaki sem Íslandsbanki, Advania, NTV og Prómennt  standa fyrir og er ætlað að auka hlut kvenna í kerfisstjórnun. Kerfisstjórar eru mjög eftirsóttir á vinnumarkaði en afar fáar konur útskrifast úr náminu.

 

Thelma hlýtur styrk fyrir skólagjöldum til að stunda árs langt nám í kerfisstjórnun við NTV. Að auki býðst henni starfsnám hjá Advania og Íslandsbanka.
«Ég var meðal 42 starfsmanna sem misstu vinnuna á mínum vinnustað í apríl. Síðan hef ég verið atvinnulaus og það hefur verið svolítið niðurdrepandi að sækja um vinnur og upplifa endurteknar hafnanir. Vegna ástandsins í atvinnulífinu fannst mér rökrétt að nýta tímann til náms og afla mér frekari þekkingar. Ég sá fyrir mér að hefja nám í forritun.»

 

Thelma rak svo augun í auglýsingu frá Íslandsbanka og Advania um námsstyrk fyrir konur í kerfisstjórnun. «Ég vissi ekkert um kerfisstjórnun en googlaði það bara og sótti um strax. Ég hélt nefninlega að maður þyrfti að vera forritari eða tæknifræðingur til að sinna svona störfum. Þegar ég las lýsinguna á náminu og starfi kerfisstjóra, fannst mér það höfða sterkt til mín. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tölvum og fannst þetta hljóma mjög spennandi.»

 

Hún útskrifaðist sem rafvirki árið 2015 og hefur unnið við það síðan. Að auki tók hún eitt ár í rafeindavirkjun og bindur vonir við um að sá bakgrunnur nýtist á nýrri vegferð. «Ég hef alltaf haft unun af því að vinna með höndunum. Ég er mjög verklagin svo smíði, saumaskapur og svoleiðis á mjög vel við mig. Ég er nokkuð viss um að starf kerfisstjóra ætti vel við mig líka.»

Hvaða væntingar hefur þú til námsins? «Ég er aðallega spennt fyrir því að læra eitthvað nýtt. Ég varð himinlifandi þegar mér var tilkynnt að ég hefði hlotið styrkinn. Þetta er einstakt tækifæri fyrir mig því námið kostar sitt. Ég vona auðvitað að námið leiði mig eitthvað áfram og ég geti unnið við kerfisstjórn á endanum.»


Fleiri fréttir

Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.