Á myndinni má sjá fulltrúa Advania taka við LS Retail Diamond Partner viðurkenningunni á LS conneXion 2026 ásamt Kristjáni Jóhannssyni forstjóra LS Retail og Carsten Wulff VP LS Retail í Evrópu.

businesscentral.advania.is - 2. maí 2026

Advania LS Retail Diamond Partner 2026: Fjórða árið í röð

Jóhanna Kolbjörg Sigurþórsdóttir
vörustjóri Business Central hjá Advania

Advania hlaut viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail nú á dögunum.

Viðurkenningin var veitt á árlegri ráðstefnu LS Retail, conneXion, sem að þessu sinni var haldin í Wiesbaden í Þýskalandi og er þetta fjórða árið í röð sem Advania hlýtur þessa viðurkenningu. LS Retail Partner Awards eru veitt til samstarfsaðila sem skara fram úr hvað varðar vöxt, fagmennsku og árangur í innleiðingum lausna LS Retail.

,,Að halda Diamond Partner stöðu í fjögur ár í röð er sterk staðfesting á þeirri djúpu tæknilegu þekkingu, reynslu og metnaði sem Advania teymið býr yfir. Viðurkenningin endurspeglar auðvitað metnað Advania til að skila lausnum af hæsta gæðaflokki sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini okkar.'' segir Hugi Freyr Einarsson forstöðumaður Business Central hjá Advania um viðurkenninguna.

Árið 2026 náðu 20 samstarfsaðilar Gold stöðu, 22 Platinum stöðu og aðeins 34 samstarfsaðilar Diamond stöðu, sem er hæsta viðurkenning LS Retail veitir til sinna samstarfsaðila.

LS Retail býr yfir einu stærsta samstarfsaðilaneti innan Microsoft Dynamics samfélagsins með yfir 300 vottaða samstarfsaðila í 157 löndum. Þeir gegna lykilhlutverki í sölu, innleiðingu og þjónustu lausna LS Retail og tryggja þannig staðbundna sérþekkingu og vandaða þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

,,Gott samstarf við LS Retail og viðskiptavini spilar einnig stóran þátt í viðurkenningunni og hlökkum við til að halda því áfram'' segir Sigurður Unnar Hauksson vörustjóri LS Retail hjá Advania.

Nánari upplýsingar um LS Retail Partner Awards 2026 og alla þá samstarfsaðila sem hlutu viðurkenningu má finna í tilkynningu LS Retail, sem birt er á heimasíðu fyrirtækisins:
Announcing the LS Retail partner awards recipients 2026

Advania er traustur sölu- og þjónustuaðili LS Retail á Íslandi og gegna lausnir LS Retail lykilhlutverki í heildarlausnum Advania fyrir verslunargeirann. Lausnirnar ná yfir allt frá afgreiðslu- og kassakerfum yfir í vefverslanir, sjálfsafgreiðslu, birgða- og innkaupastýringu og aðrar samþættar lausnir sem styðja við nútímalegan verslunarrekstur - bæði fyrir stórar og smáar verslanir.

Advania er stolt af þessum árangri og þakkar LS Retail fyrir traustið - sem og viðskiptavinum og starfsfólki fyrir framúrskarandi samstarf og árangur sem gerir þetta mögulegt, ár eftir ár.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.