Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania ásamt Sigurði Davíð Stefánssyni og Eyþóri Loga Þorsteinssyni, stofnendum Evolv. Mynd: Advania/Birgir Ísleifur Gunnarsson

Fréttir - 25. febrúar 2026

Advania kaupir Evolv

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania hefur fest kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv, ört vaxandi félagi sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Evolv hefur þróað og innleitt lausnir sem nýta stafrænt vinnuafl til að auka skilvirkni og gæði og hefur frá stofnun þess árið 2020 þjónustað fjölda fyrirtækja og stofnana, þvert á starfssvið.

„Kaupin marka mikilvægan áfanga í áframhaldandi framsækni Advania og það er mikið gleðiefni að fá jafnöflugt félag og Evolv til liðs við okkur. Evolv hefur skapað sér trausta stöðu á sínu sérsviði sem byggir á öflugri nýsköpun og fyrsta flokks þjónustuveitingu,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania.

Með kaupunum stígur Advania mikilvægt skref í þeirri stefnu að vera öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar á evrópskum markaði.

Aukið virði fyrir viðskiptavini

„Við erum gríðarlega spennt fyrir því að ganga til liðs við Advania. Frá fyrsta degi hefur metnaður okkar hjá Evolv verið að leiða þróun snjallrar sjálfvirknivæðingar og hjálpa fyrirtækjum að nýta til fulls möguleika sjálfvirkra lausna. Fram undan eru stór tækifæri í heimi sjálfvirknivæðingar,“ segir Eyþór Logi Þorsteinsson, stofnandi Evolv.

„Þetta er mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem teymið hefur lagt í uppbyggingu félagsins og þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum árum. Viðskiptavinir okkar munu njóta góðs af breiðari tæknilegri getu, auknum stuðningi og aðgengi að sterku samstarfsneti, meðal annars á sviði kjarnakerfa, gervigreindar, skýjalausna og gagnavinnslu. Með þessu leggjum við traustan grunn að næsta kafla og opnum á ný tækifæri fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk,“ segir Sigurður Davíð Stefánsson, stofnandi Evolv.

Hjá Evolv starfar öflugur hópur um 30 sérfræðinga með sterkan bakgrunn í þróun og víðtæka reynslu af innleiðingu lausna og stuðningi við starfsfólk við að hámarka ávinning sjálfvirknivæðingar. Sérfræðingar Evolv verða eftir samrunann hluti af teymi 600 sérfræðinga Advania á Íslandi. Kaup Advania á Evolv eru háð skilyrðum um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.