Fréttir - 6. febrúar 2026

Advania LIVE: Bein útsending frá UTmessunni í Hörpu

Í dag fer fram ráðstefnudagur hinnar árlegu UTmessu í Hörpu. Á UTmessunni koma saman helstu tæknifyrirtæki landsins til að deila nýjungum, hvetja fólk til að kynnast iðnaðinum og sýna hvað tæknin getur gert fyrir daglegt líf og rekstur fyrirtækja. Þetta er í 16. skipti sem UTmessan er haldin.

Líkt og á síðasta ári taka Ský og Advania á Íslandi höndum saman og halda úti beinni hlaðvarpsútsendingu frá Hörpu þar sem rætt verður við nokkra af stærstu fyrirlesurum ráðstefnunnar. Advania LIVE útsendingunni stýrir að þessu sinni Arnar Ágústsson deildarstjóri hjá Rekstrarlausnum Advania en hann hefur nokkrum sinnum sjálfur verið fyrirlesari á UTmessunni í Hörpu.

Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum frá klukkan 10 í dag. Á meðal gesta í hlaðvarpinu verða Jen Easterly og Paul Zikopolous en þau eru aðalfyrirlesarar UTmessunnar 2026. Dagskrá má sjá hér neðar í fréttinni.

Dagskrá

10:00 Jen Easterly forstjóri RSAC  
10:20 Paul Zikopoulos VP IBM Technology Group Skills Vitality & Enablement hjá IBM 
10:40 Guðmundur Arnar Sigmundsson netöryggis- og gagnaþróunarstjóri Advania
11:00 Thelma Christel Kristjánsdóttir lögmaður/CRO hjá Jónsbók 
11:20 Eiður Eiðsson framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Högum
11:40 Sigurjón Ólafsson ráðgjafi hjá Fúnksjón     
12:00 Sigurrós Soffía Kristinsdóttir hugbúnaðarverkfræðingur hjá Asana 
12:20 Hafsteinn Einarsson dósent í tölvunarfræði hjá Háskóla Íslands
12:40 Vala Hjörleifsdóttir dósent í verkfræði hjá Háskólanum í Reykjavík

Um Advania LIVE

Advania heldur úti hlaðvarpi með lifandi umræðum við sérfræðinga í beinni útsendingu við ýmis tilefni. Fjallað er um margar hliðar upplýsingatækni út frá netöryggismálum, gervigreind, nýsköpun, sjálfbærni og öllu því sem er í forgrunni hverju sinni.

Nú þegar hafa verið beinar útsendingar á vegum Advania LIVE frá ýmsum viðburðum eins og Nýsköpunarviku, UTmessunni, Mannauðsdeginum og Ferðaþjónustuvikunni. Hægt er að nálgast upptökurnar á vef Advania og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Um UTmessuna

UTmessan er viðburður fyrir öll sem elska tækni eða langar að kynna sér töfra tækninnar! Þar má skoða og prófa það nýjasta sem er gerast í tölvu- og tækniheiminum. Á ráðstefnudeginum 6. febrúar er boðið upp á fróðlega fyrirlestra og sýningar fyrir skráða gesti, en á tæknideginum 7. febrúar er opið hús þar sem öll eru velkomin að gera sér glaðan dag með líflegum sýningum og fjölbreyttum kynningum.  Á UTmessunni er eitthvað spennandi fyrir okkur öll!

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.