Blogg - 8. febrúar 2024

Advania Nordic CX Forum haldið í annað sinn

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Á dögunum hélt Advania samsteypan Nordic CX Forum í annað sinn og að þessu sinni var það haldið í Kaupmannahöfn í Danmörku.

Advania samsteypan er Gold Partner hjá Genesys, sem er leiðandi lausn fyrir samskiptaver sem annast allar samskiptaleiðir fyrirtækja i einu viðmóti þjónustufulltrúans. Hjá Advania starfar fjöldi sérfræðinga við að skapa heimsklassa viðskiptavinaupplifun með framúrskarandi samstarfsaðilum eins og Genesys.  Stefnt er að því að halda Nordic CX Formu árlega enda er tilgangur viðburðarins að deila sérfræðiþekkingu og skapa tengslanet meðal viðskiptavina Advania sem nota Genesys Cloud á Norðurlöndunum, sem að hingað til hefur fallið í góðan jarðveg.

Stór hópur fór frá Íslandi og heppnaðist ferðin með eindæmum vel enda dagskráin ekki af verri endanum. Dagskráin var þétt að vanda og byrjaði hún á því að Joakim Skalberg frá Genesys fór yfir það nýjasta í lausninni,  en Genesys Cloud lausnin er í sífelldri þróun. Næst kom magnað sýnidæmi um hvernig hægt er að tengja ChatGPT ský Advania við lausnina. Þannig er hægt að byggja upp mjög öfluga talvél sem hægt er að tala við en vélin flokkar þá sjálfvirkt og svarar einnig með AI á ótrúlega einfaldan máta. Þetta vakti vægast sagt mikla lukku og ljóst að margir viðskiptavinir sjá mikil tækifæri í þessu. Við tóku athyglisverð erindi frá Fremtind og Lowell, þar sem þau fóru yfir það hvernig Geneys lausnin hefur nýst þeim og fleiri áhugaverð erindi.

Á milli erinda sýndu sérfræðingar möguleikana í kerfinu og svöruðu spurningum, en einnig var hægt að nýta tímann í að efla tengslanetið Kvöldið endaði svo með frábærum mat og skemmtun.  Hugmyndin er að ráðstefnan flakki á milli landa og er kosið hverju sinni um land. Hver veit nema Ísland verði fyrir valinu á næsta ári. Þeim fer ört fjölgandi fyrirtækjunum sem nota Genesys fyrir sín samskiptaver og efumst við ekki um að íslenski hópurinn muni stækka enn meira á næsta fundi.

Fleiri fréttir

Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Fréttir
20.10.2026
Tuttugu og sjö sekúndur. Það var tíminn sem það tók árásaraðila að komast frá fyrsta inngangspunkti yfir í önnur kerfi í hraðasta tilvikinu sem CrowdStrike mældi á árinu. Á þeim tíma ná flestir varla að skrá sig inn í vinnutölvuna.
Blogg
19.10.2026
Það var þétt setinn salur, kaffilykt í loftinu og góð stemning á árlegum dótadegi Advania á Akureyri. Þema ársins var skýrt: gervigreind er hætt að vera eitthvað sem gerist úti í skýi og komin inn í búnaðinn sjálfan, alla leið niður í heyrnartólin.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.