Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir yfirmaður sölu, markaðsmála og viðskiptaþróunar hjá Keystrike í Evrópu, Guðmundur Arnar Sigmundsson forstöðumaður netöryggis og gagnaþróunar hjá Advania. og Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri og meðstofnandi Keystrike.

Fréttir - 18. maí 2026

Advania og Keystrike í netöryggissamstarf

Advania og netöryggisfyrirtækið Keystrike hafa skrifað undir samstarfssamning sem gerir Advania kleift að bjóða viðskiptavinum sínum Keystrike sem hluta af öflugu netöryggisframboði félagsins.

Með samstarfinu fá viðskiptavinir Advania aðgang að framsækinni netöryggislausn sem fellur hnökralaust að og styður við aðrar öryggislausnir fyrirtækja og stofnana.

„Keystrike er öflug vara og fellur vel inn í það vöruframboð sem Advania vill bjóða viðskiptavinum til að hámarka netöryggisþol þeirra. Lausnin er til þess fallin að auka vernd gegn innbrotum og gagnaþjófnaði og er sérstaklega sterk fyrir viðskiptavini sem reka sitt eigið þjónustuumhverfi í gagnaverum,“ segir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggis- og gagnaþróunar hjá Advania.

„Við erum afar ánægð með að vera komin í samstarf við Advania og að geta boðið viðskiptavinum félagsins aðgang að Keystrike sem hluta af öflugri netöryggisþjónustu þeirra. Advania hefur djúpa þekkingu á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og stofnana, og saman getum við hjálpað viðskiptavinum að styrkja varnirnar þar sem áhættan er mest: inni í virkum aðgangslotum eftir innskráningu,“ segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike.

Stöðug auðkenning í rauntíma

Lausn Keystrike byggir á þeirri staðreynd að yfirtaka hakkara á tölvum starfsfólks og fyrirtækja er alltaf gerð í gegnum fjartengingar og að það eina sem hakkarar geta ekki gert er að gefa skipun á lyklaborð og mús í raunheimum. Hugbúnaður Keystrike tryggir í rauntíma stöðuga auðkenningu skipana í gegnum fjartengingar, þannig að tengingin sjálf er örugg eftir að hefðbundin tví- eða margþátta auðkenning á sér stað. Lausnin byggir á dulritaðri staðfestingu þess að skipanir í virkum aðgangslotum komi frá raunverulegum aðila við lyklaborð og mús, en ekki frá árásaraðila sem hefur komist yfir notendaaðgang, lykilorð eða aðrar auðkenningar.

Lausn Keystrike byggir á þremur þáttum. Í fyrsta lagi á rauntímayfirliti allra fjartenginga, sem gefur heildstætt yfirlit yfir hvaða netþjónar eru óvarðir og hvaðan óvarðar tengingar eru að koma. Í öðru lagi á því að virkni lausnarinnar staðfestir innslátt á auðkennda vinnustöð og stöðvar umsvifalaust RDP og SSH tengingar eru ekki auðkenndar. Þriðji þáttur lausnarinnar styður við hlítingu reglugerða á borð við NIS2 og DORA, með því að veita stöðuga yfirsýn, rauntímagögn og sannvottaðar upplýsingar um að allar fjartengingar fyrirtækja eru varðar.

Samkvæmt nýrri skýrslu frá Palo Alto Networks eru 90% netárása tengdar yfirtöku tví- eða fjölþátta auðkenningar (MFA) í gegnum fjartengingu eins og RDP eða SSH. Samstarf Advania og Keystrike hefur því burði til að hafa afgerandi áhrif á öryggisþol fyrirtækja og stofnana.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.