Frá undirritun samningsins á milli Iceland Innovation Week, NVIDIA og Advania.

Fréttir - 8. maí 2025

Advania og NVIDIA sameina kraftana á Iceland Innovation Week

Advania og NVIDIA taka saman þátt í Innovation Week í ár og eru á meðal aðalstyrktaraðila ráðstefnunnar. Tæknifyrirtækin ætla þar að kynna gesti ráðstefnunnar fyrir krafti gervigreindarinnar. Advania varð snemma á árinu Elite partner hjá NVIDIA og er nú í hæsta mögulega flokki samstarfsaðila tæknirisans, sem opnar á mikla möguleika.

„Við erum einstaklega spennt fyrir samstarfi okkar við Advania og NVIDIA í ár. NVIDIA er eitt af stærstu tæknifyrirtækjum heims og við lítum á þátttöku þeirra sem tækifæri til að efla tengslin milli íslenskrar nýsköpunarfyrirtækja og alþjóðlegra leiðtoga í tæknigeiranum. Við hlökkum til að sjá hvernig þetta samstarf mun styrkja íslenska frumkvöðla og opna á ný tækifæri þegar kemur að tækniþróun og gervigreind,“ segir Melkorka Sigríður Magnúsdóttir einn stofnanda og eigenda Iceland Innovation Week.

„Það hefur verið ævintýri að vinna náið með NVIDIA undanfarna mánuði. NVIDIA kemur með dýrmæta reynslu að borðinu og sú víðtæka þekking sem er í hinum öfluga starfsmannahópi Advania og hið frábæra „látum þetta gerast“ viðmót sem einkennir menningu okkar, nýtist vel við þær áskoranir sem við erum að takast á við. Að eiga í nánu samstarfi við eitt öflugasta tæknifyrirtæki í heiminum á tímum þessarar risa tæknibyltingar er ekki bara tækifæri fyrir Advania heldur fyrir allt Ísland,“ segir Auður Inga Einarsdóttir framkvæmdastjóri innviðalausna hjá Advania.

Advania og NVIDIA verða með stóran bás við hlið stóra sviðsins á Iceland Innovation Week í Kolaportinu 14. og 15. maí þar sem margt spennandi verður í gangi og sérfræðingar frá báðum fyrirtækjum taka vel á móti gestum. Þann 14. maí höldum við einnig einstakan hliðarviðburð í næstu byggingu, á Pop-Up svæði nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi. Á viðburðinum Q&A with Advania and NVIDIA: Unlock the full potential of AI gefst gestum tækifæri til þess að læra um það hvernig fyrirtæki að öllum stærðum - ekki bara þau allra stærstu - geta nýtt mögnuð tól NVIDIA til að vaxa, bæta ferla og styrkja samkeppnishæfni. Á meðal þeirra sem koma fram er Linda Malm frá NVIDIA, Þórður Jensson forstöðumaður og Viðar Pétur Styrkársson vörustjóri gervigreindarlausna Advania . Arnar Ágústson deildarstjóri hjá rekstrarlausnum verður fundarstjóri viðburðarins.

Isabella Holmberg tengiliður Advania hjá NVIDIA mun einnig stíga á stóra sviðið í Kolaportinu þann 14. maí og halda fyrirlestur um gervigreind og hvernig tækni NVIDIA getur breytt hugmyndum í töfra.

Þann 15. maí verður svo sérstök Advania LIVE útsending frá Iceland Innovation Week og verður hægt að fylgjast með streyminu í beinni útsendingu. Líkt og á síðasta ári verður þar rætt við fyrirlesara og fleiri góða gesti um nýsköpun, gervigreind, sjálfbærni og margt fleira.

Í þessari viku tekur nýsköpun yfir borgina og halda Advania og NVIDIA einnig vinnustofu á þriðjudag um hagnýtingu gervigreindar  íslensku atvinnulífi í húsakynnum Advania.

Iceland Innovation Week er árleg nýsköpunarvika sem hefur það markmið að efla frumkvöðlastarfsemi og tækniframfarir á Íslandi. Iceland Innovation Week hefur orðið vettvangur sem dregur að sér bæði innlenda og erlenda sérfræðinga og hefur þannig stuðlað að aukinni alþjóðlegri athygli á nýsköpunarumhverfi Íslands.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.