Fréttir - 17. apríl 2026

Advania verðlaunað á Partner viðburði NVIDIA

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.

Viðurkenningin er veitt Advania í Svíþjóð fyrir öflugt samstarf og vinnu félagsins við að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að færa gervigreind frá því að vera hugmynd yfir í að ná mælanlegum árangur í rekstri.

„Þetta er enn ein staðfestingin á þeirri frábæru vinnu sem hefur verið unnin innan Advania samstæðunnar og endurspeglar vel þá stefnu Advania að verða leiðandi í nýtingu gervigreindar í Norður-Evrópu. Advania samstæðan hefur lagt mikla áherslu á að byggja upp þekkingu og reynslu í gervigreind þvert á samstæðuna sem styður við viðskiptavini á öllum okkar mörkuðum,“ segir Auður Inga Einarsdóttir framkvæmdastjóri Innviðalausna Advania.

Advania á Íslandi hefur verið Elite Partner hjá NVIDIA í á annað ár og eigum við í góðu samstarfi við tæknirisann. Höfum við meðal annars haldið fjölda námskeiða og viðburða með sérfræðingum NVIDIA, sem hefur einnig verið einn af stærstu samstarfsaðilum Haustráðstefnu okkar síðustu ár.

„Fyrir okkur á Íslandi felst mikill styrkur í því að vinna með Advania samstæðunni og samstarfsaðilum á borð við NVIDIA við að styðja við innleiðingu gervigreindar á íslenskum markaði. Það er sérstaklega spennandi að geta farið að stað af krafti hér á Íslandi með þann sterka grunn, þekkingu og reynslu sem þegar hefur verið byggð upp í Svíþjóð og þvert á samstæðuna,“ segir Þórður Ingi Gu[mundsson forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania.

Advania hefur skýrt markmið að nýta sameiginlega þekkingu fyrirtækjanna tveggja til að hraða upptöku gervigreindar á Norðurlöndunum og styðja við ábyrga og virðisskapandi notkun gervigreindar hjá viðskiptavinum. Samstarf okkar við NVIDIA er hluti af stefnu okkar um að hraða gervigreindarumbreytingu íslensks atvinnulífs og styðja við samkeppnishæfni landsins. Eins og við sögðum frá á dögunum tók teymi frá Advania á Íslandi þátt í sérstöku NVIDIA Advisor námskeiði í München, en alls voru þar 30 sérfræðingar frá Advania samstæðunni. Þjálfunin miðar að því að efla hæfni og stefnumótun fyrirtækja í innleiðingu gervigreindar.

Fleiri fréttir

Blogg
06.10.2016
Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg tækniþróun og aldrei nokkurn tímann höfum við haft úr eins mörgum kostum að velja þegar kemur að tölvubúnaði.
Blogg
13.09.2016
Héðan í frá munu uppfærslur, nýjungar og viðbætur einkenna Windows – ekki nýtt Windows stýrikerfi.
Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.