Það fer ekki mikið fyrir þessari öflugu vél

Blogg - 9. desember 2025

Dell Pro Max GB10: Tæknigrunnur fyrir næstu kynslóð gervigreindarlausna?

Sævar Ríkharðsson
Vörustjóri Dell á Íslandi

Það er gaman að segja frá því að næsta skref í þróun og reiknilíkönum fyrir gervigreind er á leiðinni. Advania kynnti fyrir stuttu NVIDIA DGX Spark vélina sem seldist upp samdægurs, nú er komið að Dell að taka við keflinu.

Dell Pro Max GB10 er engin venjuleg tölva

Dell Pro Max GB10 er komin á lager. Vélin er búin sömu grunnkerfum og eiginleikum og NVIDIA DGX Spark vélin ásamt því að NVIDIA AI hugbúnaðarumhverfið fylgir einnig með Dell Pro Max GB10. Vélin er næsta skref í þróun og vinnslu á gervigreind. Stundum hentar betur að þróa gervigreindarlíkön „on prem“ áður en varan er gefin út og fer í rekstur. Þá hentar Dell Pro Max GB10 fullkomlega. Lítil og nett á skrifborðið.

Af hverju Dell Pro Max GB10?

  • Hún er hönnuð fyrir framtíðina. Ætluð fyrir gervigreind, gagnagreiningu og þung reiknilíkön.
  • Afköst í fremstu röð.  Grace Blackwell 10 arkitektúrinn tryggir hraða og vinnslu sem hingað til hefur ekki verið fáanleg í nettri lausn beint á skrifborðið.
  • 2TB geymslupláss. Nóg pláss fyrir gagnasöfn, verkefni og vinnuflæði.
  • 3 ára ábyrgð. Dell tryggir öryggi og þjónustu svo þú getir unnið áhyggjulaust.
Sjáðu vélina í vefverslun:
404

Fyrir hverja vélin hugsuð?

  • Fyrirtæki sem vinna með gervigreind og stór gagnasöfn.
  • Þróunarteymi sem þurfa hraða og stöðugleika.
  • Vísindarannsóknir og verkefni sem krefjast mikils útreikningsafls.

Fullkomin fyrir þróun gervigreindar

Ef þú ert að vinna með gervigreind, þá er þetta frábær lausn fyrir þig. Vélin er sérhönnuð til að:

  • Þróa og þjálfa flókin gervigreindarlíkön
  • Keyra stór gagnasöfn djúptauganet án þess að missa hraðann
  • Skila stöðugum afköstum í verkefnum sem krefjast þungrar reiknigetu

Eigum við að ræða þín tækifæri?

Innan raða Advania eru ótal sérfræðingar í gervigreind. Við sérhæfum okkur í öllu frá valinu á rétta vélbúnaðinum, til gagnavinnslu og almennrar ráðgjafar.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.