Endurkoma Dell XPS og magnaðir skjáir á CES 2026
Eins og allir sannir nördar vita, er tæknisýningin CES í fullum gangi þessa dagana í Las Vegas. Okkar fólk hjá Dell er vitaskuld á staðnum og hefur nú þegar kynnt tvo verulega spennandi hluti.
Sævar Ríkharðsson
Vörustjóri Dell á Íslandi
Dell XPS línan endurvakin með vandaðri hönnun
Eftir örlitla fjarveru, hefur XPS línan nú snúið aftur. Og verið tekin á næsta stig! Nýjar Dell XPS 14 og 16 litu dagsins ljós á sýningunni og það má með sanni segja að þær hafa aldrei verið jafn glæsilegar. Tölvurnar eru mun þynnri, léttari og endingarbetri tæki en áður. Þrátt fyrir að vera aðeins 14,6 mm á þykkt og vega aðeins frá um 1,4 kg, hafa þær aldrei verið jafn sterkar. Enda meðal annars settar saman úr CNC fræstu áli og Gorilla Glass. Að auki verða tölvurnar í boði með þriðju kynslóð Intel Ultra örgjörva, sem nefndir eru Panther Lake. Það hjálpar til við að tryggja eina bestu rafhlöðuendinguna sem sést hefur í fartölvum, allt að 27 klukkustundir á einni hleðslu! Ekki skemmir svo fyrir að nýju XPS vélarnar verða í boði með nýja Tandem OLED skjánum sem hefur slegið í gegn í Dell Pro Premium línunni. Síðar á árinu munum við svo eiga von á að Dell tilkynni nýja XPS 13, sem mun eflaust gleðja þá sem leita að einstaklega meðfærilegum fartölvum.
Nýir Dell UltraSharp skjáir sem setja ný viðmið
Dell kynnti tvo nýja skjái sem setja nýjan staðal í hvernig hægt er að vinna.
UltraSharp 52" 6K Thunderbolt Hub skjárinn er fyrsti 52" sveigði 6K skjárinn í heiminum hannaður fyrir sérfræðinga sem vinna með mikið af gögnum í einu. Excel hefur aldrei litið jafn vel út. Skjárinn er með 120Hz endurnýjunartíðni, IPS Black tækni og sýnir allt að 60% minna blátt ljós. Fyrir suma kann að hljóma galið að vera með svo stóran tölvuskjá, en það býður upp á marga möguleika. Til dæmis er hægt að tengja við skjáinn fjórar tölvur samtímis og stjórna þeim með einu lyklaborði og mús.
Um leið kynntu Dell nýjan UltraSharp 32" 4K QD-OLED. Ótrúlegur skjár fyrir skapandi fagfólk. Hann er með DisplayHDR True Black 500 og Dolby Vision. 99% DCI-P3 liti og innbyggðan litmæli (e.colorimeter) fyrir nákvæma litastillingu.
Koma í sölu hjá Advania
Þessar græjur eru vitaskuld allar væntanlegar í sölu hjá Advania. Dagsetningar og verð eiga eftir að koma í ljós, en ef þú hefur áhuga að heyra fyrstu fréttir, hvetjum við þig til að skrá þig á póstlistann okkar: