Frá Viðskiptakerfadegi Advania 2025.

Fréttir, Power Platform - 16. febrúar 2026

Tryggðu þér miða á Viðskiptakerfadag Advania

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Á Viðskiptakerfadegi Advania þann 11. mars næstkomandi koma saman sérfræðingar Advania, viðskiptavinir og fulltrúar Microsoft til að ræða framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og opnar húsið klukkan 12:30.

Á Viðskiptakerfadegi Advania færðu innsýn í hvernig fyrirtæki geta nýtt nýjustu lausnir í Dynamics 365, Power Platform og Copilot til að auka skilvirkni, draga úr handtökum og skapa raunverulegan rekstrarávinning.

Byrjum daginn saman

Sameiginleag línan kl. 13:00 setur tóninn fyrir daginn með áherslu á stöðu og framtíð viðskiptakerfa. Fjallað er um hraða þróun gervigreindar og Copilot-lausna, vegferðina að sjálfvirkum ERP-kerfum og hvernig fyrirtæki geta farið frá hugmyndum yfir í raunverulega hagnýtingu og mælanlegt virði.

Eftir kaffihlé skiptist dagskráin í þrjár sérhæfðar línur þar sem þátttakendur velja þá línu sem á best við þeirra hlutverk og áskoranir.

Business Central línan

Hagnýt ráð, sjálfvirkni og gervigreind til að vinna hraðar og snjallara í Business Central.

14:35 - 15:05 30 ráð á 30 mínútum

15:05 - 15:35 Fækkaðu handtökum með snjallri tækni

15:35 - 16:00 Q&A

F&O línan

Undirbúningur innleiðingar, raun­dæmi, nýjungar í Master Planning og skilvirkari vinnusíður í D365 F&O.

14:35 - 14:55 Mikilvægi undirbúnings í innleiðingu á viðskiptakerfi

14:55 - 15:15 Master Planning in Dynamics 365 F&O

15:15 - 15:35 Aukin afköst, minni hávaði - sérsniðnar vinnusíður að þínu starfi

15:35 - 16:00 Q&A

Power Platform línan

Einföld ráð í Power BI og Power Automate, raun­saga úr rekstri og Copilot Studio í beinni.

14:35 - 14:55 Power BI og Power Automate fyrir daglega notkun

14:55 - 15:15 Reynslusaga úr bransanum: Vegferð Kjarnafæði Norðlenska - frá hugmynd til hagnýtingar

15:15 - 15:35 Erindreki á 20 mínútum - Copilot Studio í verki

15:35 - 16:00 Q&A

Fleiri fréttir

Blogg
15.05.2013
Jet Reports gerir notendum kleift búa til öflugar greiningarskýrslur og er Jet Express innifalið í Microsoft Dynamics NAV.
Blogg
07.05.2013
Á hinum árlegu Convergence ráðstefnum Microsoft er farið ítarlega í Microsoft Dynamics NAV, AX og CRM.
Blogg
30.04.2013
Gott aðgengi getur opnað fyrirtækjum aðgang að risavöxnum markaði sem fáir sinna.
Blogg
23.04.2013
Hér er farið yfir helstu breytingarnar sem mæta notendum Windows 8 og sýnt hvernig þær virka.
Blogg
17.04.2013
Rafræn staðfesting á vöruafhendingu gerir fyrirtækjum kleift að staðfesta hvenær vara var afhent og hver tók á...
Blogg
10.04.2013
Ég skora á stjórnvöld og fyrirtæki landsins að leggja okkur lið við innleiðingu á forritunarkennslu í skólum landsins.
Blogg
03.04.2013
MobileNAV appið gerir notendum kleift að tengjast Microsoft Dynamics NAV, hvar og hvenær sem er, í farsíma eða í spjaldtölvu.
Blogg
27.03.2013
Ávinningur fyrirtækja af því að innleiða Lync samskiptaforritið er margvíslegur og verður hér aðeins stiklað á stóru í þeim efnum.
Blogg
20.03.2013
Ég vil gefa fólki tilfinningu fyrir því að það sem við í tölvubransanum vinnum við að framleiða getur haft gríðarleg áhrif á líf fólks.
Blogg
13.03.2013
Á tímum örra tæknibreytinga í verslunar- og þjónustulausnum þurfa rekstraraðilar að gæta að sambandi sínu við viðskiptavini.
Blogg
05.03.2013
Hér er farið yfir það allra helsta sem til nýjunga horfir í SharePoint 2013.
Blogg
26.02.2013
Þjálfun og fræðsla eru mikilvægir þættir í starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.