Blogg - DD.03.YYYY

Nokkrar flottar nýjungar í SharePoint 2013

Hér er farið yfir það allra helsta sem til nýjunga horfir í SharePoint 2013.

SharePoint er í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum hér á landi. Á dögunum kom út ný útgáfa af þessum vinsæla hugbúnaði sem kallast einfaldlega SharePoint 2013  sem inniheldur mikið af nýjungum. Hér er farið yfir það allra helsta sem til nýjunga horfir.

Auðveldara að setja eigið útlit á SharePoint síður

Með nýju útgáfunni er auðveldara að setja klæðskerasaumað útlit á vefsíður sem eru hýstar í SharePoint og gildir þá einu hvort um er að ræða vefsíður sem eru ætlaðar innan fyrirtækisins eða fyrir ytri notendur eins og til dæmis viðskiptavini eða samstarfsaðila. SharePoint kemur sjálfsagt ekki öllum tilfellum í staðinn fyrir að vera með sérhæft vefkerfi fyrir stóra fyrirtækjavefi en getur hentað mjög vel fyrir innra net. Þessu til viðbótar þá hafa möguleikar fyrir vefstjórnun verið auknir verulega. Til dæmis er einfaldara að setja upp útgáfuferla á vefsíður í SharePoint 2013 en í 2010 útgáfunni.



Betri samhæfing við ytri gagnalindir

Með “Business Connectivity Services” má tengjast gagnalindum sem staðsettar eru fyrir utan SharePoint. Dæmi um þetta eru stuðningur við öpp og nýtt “app store” í SharePoint. Með SharePoint 2013 “Event Listener” má gerast áskrifandi að tilkynningum frá öðrum kerfum og fá áminningu þegar eitthvað breytist.

Betri stuðningur við viðskiptagreind

Í SharePoint 2013 er margháttaður stuðning við viðskiptagreind. Hægt er að nýta SharePoint Server 2013 til að setja upp mælaborð þar sem stjórnendur og starfsmenn geta fylgst með lykilþáttum í rekstri fyrirtækisins. Þarna kemur PowerPivot sterkur inn en við hann er fullur stuðningur í SharePoint 2013.

Auðvelt að nota snjallsíma og spjaldtölvur með SharePoint 2013

Vefsíður í SharePoint 2013 eru snjallar og laga sig að skjástærðum á því tæki sem þær eru skoðaðar í hverju sinni. Ennfremur er fjölmargt gert til að auka notagildi SharePoint 2013 fyrir notendur snjalltækja.

Fínpússuð leitarvirkni

Margvíslegar endurbætur hafa verið gerðar á leitinni í SharePoint 2013. Til dæmis er hægt að fínstilla leitina til að auðvelda almennum notendum að finna efni við sitt hæfi og hægt að sjá innihald skjala beint úr leitarniðurstöðum án þess að opna skjalið. 

Breyttu innra netinu í samfélagsvef

Það má segja að vinsældir samfélagsmiðla eins og Facebook og Twitter hafi „smitast“ inn í SharePoint 2013. Notendur geta nú deilt efni eða gerst áskrifendur að efni frá samstarfsaðilum og vinnufélögum. Ennfremur er auðveldara að vinna saman í verkefnum í gegnum SharePoint 2013. Auðvelt er að setja upp umræðusvæði sem tengjast mikilvægum málefnum.

Þetta er aðeins „brot af því besta“ sem er nýtt og spennandi í SharePoint 2013. Ekki hika við að hafa samband þið hafið einhverjar spurningar varðandi hagnýtingu og innleiðingu á SharePoint 2013.

Myndbönd frá Microsoft sem sýna nýja virkni og viðmót SharePoint 2013

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.