Frá Haustráðstefnunni 2025 í Hörpu. Mynd: Advania/BIGS

Fréttir - 31. ágúst 2026

Framtíðin kallar: Gervigreind, netöryggi og nýsköpun á Haustráðstefnu Advania

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Haustráðstefna Advania fer fram í 32. sinn í Hörpu fimmtudaginn 10. september 2026 þar sem gervigreind, netöryggi og nýsköpun mætast. Á dagskrá eru sautján erindi og tvær pallborðsumræður svo á svið stíga yfir 20 sérfræðingar en uppselt er á ráðstefnuna á hverju ári.

Við skyggnumst inn í framtíðina en áherslan er ekki eingöngu á það sem tæknin gæti gert, heldur einnig á það sem hún er raunverulega að gera í rekstri fyrirtækja og stofnana í dag. Frá íslensku atvinnulífi fáum við á svið Ástu Sigríðí Fjeldsted forstjóri Festi með erindið Frá áhuga til athafna - gervigreind í framkvæmd, þar sem hún fjallar um áhugaverða gervigreindarvegferð Festi. Hulda Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Nox Medical segir frá því hvernig tveggja áratuga gagnasöfnun opnar nýjar leiðir til innsýnar með gervigreind.

Valþór Druzin Halldórsson, forstöðumaður gagnaþjónustu og gervigreindar hjá Íslandsbanka, flytur erindið Þetta reddast! - nú með gervigreind og Corey Harpe, sem leiðir líkanagerð og gagnavísindi hjá Veitum, sýnir hvers vegna innleiðing, traust og breytt vinnulag skipta stundum meira máli en tæknin sjálf. Sveinn Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda gervigreindarfyrirtækisins GreenFish, fer yfir hraðan vöxt fyrirtækisins á alþjóðamarkaði og hvaða lærdóm íslensk fyrirtæki geta dregið af þeirri vegferð. Eva Rut Bernhöft Reynisdóttir, sjálfvirknisérfræðingur hjá Evolv frá Advania, sýnir svo hvernig hægt er að ná árangri og skapa raunverulegt virði með sjálfvirkni og gervigreind.

Mynd: Advania/BIGS

Mynd: Advania/BIGS

Meðal erlendra fyrirlesara sem koma til Íslands til að flytja erindi á Haustráðstefnunni eru Arash Ghazanfari, CxO Advisor hjá Dell Technologies og fyrrverandi tæknistjóri Dell í Bretlandi, Neil Sholay, sem leiðir stefnumótun Oracle á sviði gagna- og gervigreindarvettvanga, Azra Dajić frá Advania í Svíþjóð, Jon Farkas, Field CTO hjá Verkada, og Peter Henry Andersen frá Fortinet. Rauði þráðurinn er sá sami og íslenskir stjórnendur glíma við daglega: hvernig kemst gervigreind úr tilraunastarfsemi yfir í raunverulegan rekstur?

Netöryggi hefur aldrei verið mikilvægara og gervigreindin hefur bæði skapað nýjar ógnir og spennandi tækifæri í öryggismálum. Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri stöðuvitundar hjá netöryggissveitinni CERT-IS, fer yfir hvernig gervigreind hefur breytt bæði netárásum og veikleikagreiningu hér á landi, og Guðmundur Arnar Sigmundsson, netöryggis- og gagnaþróunarstjóri Advania, lokar deginum með erindi um netöryggisþol, getuna til að taka höggið, aðlagast og halda áfram. Þá fjallar dr. María Rún Bjarnadóttir, sem fer fyrir íslenskum vinnuhópi um djúpfalsanir og misnotkun gervigreindartækni, um þann hluta gervigreindarumræðunnar sem snýst um fólk fremur en framleiðni og dr. Morris Riedel, prófessor við Háskóla Íslands og fulltrúi Íslands í stjórn EuroHPC, fjallar um þá reiknigetu sem liggur undir öllu saman.

Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi, setur ráðstefnuna og Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur fyrsta erindi dagsins. Í tilefni af ráðstefnunni bjóðum við einnig á fjölda hliðarviðburða með samstarfsaðilum ráðstefunnar þar sem kafað verður enn dýpra í tæknina.

Fleiri fréttir

Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Blogg
07.10.2015
Borgir heims stækka ört. Það þarf að bregðast við þessu, til dæmis með breyttu eða nýju skipulagi, og með því að styrkja alla innviði.
Blogg
29.09.2015
Við hjá Advania leggjum fjölmörgum fasteignafélögum til hugbúnað sem einfaldar verulega rekstur þeirra og starfsemi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.