Blogg - 23. febrúar 2026

Hvað skiptir máli í tölvukaupum fyrir sumarstarfsfólkið?

Bragi Gunnlaugsson
Sérfræðingur, innviðalausnum Advania

Nú nálgast sumarið hratt og mörg fyrirtæki farin að huga að ráðningu sumarstarfsfólks. Á mörgum vinnustöðum verður oft snúið að finna rétta búnaðinn, enda þarf að finna rétta jafnvægið á milli kostnaðar, notagildis og öryggis. Við höfum tekið saman nokkur ráð sem gott er að hafa í huga:

Það þarf ekki alltaf að versla það dýrasta

Sumarstörf krefjast sjaldnast öflugasta búnaðarins. Fyrir verkefni eins og tölvupóst, vefkerfi, skjalavinnu og einföld viðskiptaforrit duga oft hagkvæmari fartölvur vel. Mikilvægt er að horfa frekar á áreiðanleika, rafhlöðuendingu og að tölvan styðji nútímaleg öryggiskerfi, frekar en hámarksafköst.

Við mælum sérstaklega með:
404

Endurnýting fer vel með budduna og umhverfið

Margir vinnustaðir eiga tölvur uppi í hillu sem ekki eru lengur í daglegri notkun hjá fastráðnu starfsfólki. Slíkar tölvur má oft endurnýta með því að senda þær í uppfærslu. Í mörgum tilfellum má til dæmis:

  • uppfæra stýrikerfi
  • auka vinnsluminni eða setja nýjan SSD disk
  • hreinsa og gera fínt
  • kaupa lengri ábyrgð

Með þessu er hægt að lengja líftíma búnaðarins um nokkur ár og draga verulega úr innkaupakostnaði. Fyrirtæki á borð við Advania bjóða upp á slíka þjónustu, þar sem eldri tölvur eru yfirfarnar og gerðar tilbúnar til áframhaldandi notkunar.

Aukahlutirnir eru oft í aðalhlutverki

Að spandera nokkrum þúsundköllum í nýja aukahluti getur skilað sér margfalt í upplifun sumarstarfsmannsins. Það er heilmikill munur á að fá nýtt lyklaborð, mús og heyrnartól, frekar en gamalt og notað. Forðastu samt að kaupa sérlausnir fyrir hvern og einn. Vertu jafnvel með „ríkis“ lyklaborð og mús sem allir fá, og hægt er að geyma á lager á vinnustaðnum og afhenda eftir þörfum. Þetta einfaldar allan rekstur og sparar í innkaupum.

Lyklaborð og mús:
404
Bakpoki:
404
Heyrnartól:
404

Að lokum: Það borgar sig að vera tímanlega í því

Það margborgar sig að huga að sumastarfsmannagræjumálunum fyrr frekar en seinna. Teikna t.d upp hvað er hægt að endurnýta og hvað þarf að kaupa. Þannig er hægt að lækka kostnað og tryggja að allt gangi smurt fyrir sig þegar blessað sumarið kemur. Ef þig vantar aðstoð við að teikna hlutina upp fyrir sumarið, eru sérfræðingar okkar alltaf reiðubúnir að aðstoða. Ekki hika við að senda okkur línu og fá tilboð í þín innkaup.

Fleiri fréttir

Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.