Blogg - 5. mars 2026

Jabra Evolve 3 – Ný kynslóð heyrnartóla þar sem gæði og útlit fer saman.

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Jabra hefur kynnt til leiks Evolve 3 seríuna. Glænýja kynslóð heyrnartóla sem sameinar hágæða hljóð, smekklega hönnun og háþróaða tækni fyrir bæði vinnu og afþreyingu. Tvær tegundir eru komnar til Advania: Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (ofan á eyru), og báðar sporta nýrri nálgun á hönnun og virkni.

Ný hugsun í hönnun

Ein stærsta breytingin í Evolve3 seríunni er boomless hönnunin – enginn sjáanlegur hljóðnemi. Þrátt fyrir það skilar heyrnartólið kristaltæru tali þökk sé Jabra ClearVoice, djúpnámsreknu raddvinnslukerfi sem einangrar röddina frá umhverfishljóðum. Þetta gerir heyrnartólin mun nútímalegri og stílhrein, og þau líta út eins og svölustu og vinsælustu heyrnatólin á markaðnum en viðhalda faglegum gæðum.

Hönnunin er mjög létt, samanbrjótanleg og þægileg – fullkomin fyrir ferðalög, skrifstofuna eða kaffihúsið. Flatir toppar heyrnartólanna gera þau einnig hlaðanleg beint á venjulegum þráðlausum hleðslupúðum, sem eykur þægindin til muna. Hægt er að fá þau með eða án hleðslu en hleðslan getur þá einnig hlaðið símann þinn. Það er einnig nýjung að þau koma í tveim litum, hvít og svört. Ný gerð púða er á tólunum sem eru úr léttu efni og þægileg.

Sjáðu í vefverslun:
404

Helstu kostir Evolve 3 heyrnartólanna

1. Frábær hljóðgæði og ný kynslóð raddvinnslu

  • Jabra ClearVoice tryggir skýra rödd í samtölum án þess að þurfa sjáanlegan hljóðnema.

2. Eyðing á umhverfishljóðum (Adaptive ANC)

  • Heyrnartólin greina hljóðumhverfið í rauntíma og aðlaga hávaðadeyfingu bæði í samtölum og tónlist – ólíkt mörgum samkeppnisaðilum.

3. Mjög löng rafhlöðuending og skjót hleðsla

  • Allt að 120 klukkustundir af tónlist og 25 klukkustundir af samtölum á einni hleðslu.
  • 10 mínútna hraðhleðsla skilar allt að 10 klukkustundum notkunar.

4. Hönnuð fyrir bæði vinnu og einkanot  „work & life“

  • Þau eru hugsuð sem heyrnartól sem duga bæði í fjarfundi og fyrir tónlist á ferðinni.
  • Létt, nýtískuleg og með skipan sem höfðar til notenda sem vilja ekki „skrifstofu útlit“.

5. Endingargóð og útskiptanlegir íhlutir

  • Hægt er að skipta um bæði rafhlöðu og púða í heyrnatólunum og þannig lengja líftímann og auka sjálfbærni.
Sjáðu í vefverslun:
404

Teams vottun

Jabra Evolve3 er hannað fyrir fyrirtækjaumhverfi og styður allar helstu samskipta og samvinnulausnir á markaðnum. 
Bæði Evolve3 85 og 75 eru vottaðar fyrir Microsoft Teams, með örugga og aðlögunarhæfa Bluetooth tengingu og möguleika á miðlægu stýringu í Jabra Plus hugbúnaðinum.  

Þetta tryggir að heyrnartólin virki hnökralaust í fundum eða daglegt símtalaflæði hjá starfsmönnum.

Jabra & Advania – áralöng samvinna fyrir íslenskan markað

Advania hefur í mörg ár verið einn helsti samstarfsaðili Jabra á Íslandi. Í gegnum þessa samvinnu hefur fyrirtækið tryggt íslenskum stofnunum og fyrirtækjum áreiðanlega, faglega og vottaða heyrnartólatækni sem stenst kröfur nútíma samskipta. Evolve3 serían er framhald þessarar vegferðar – næsta skref í að útvega íslenskum notendum bestu mögulegu tækin fyrir fjarvinnu, blandað vinnulag og háar gæðakröfur.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.