Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi ásamt Sigurði Davíð Stefánssyni og Eyþóri Loga Þorsteinssyni, stofnendum Evolv. Ljósmynd: BIGS

Fréttir - 27. maí 2026

Kaup Advania á Evolv gengin í gegn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv.  Samruninn er mikilvægur þáttur í áframhaldandi framsækni Advania á Íslandi og stórt skref í þeirri stefnu að verða öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á evrópskum markaði.

Evolv er félag sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu og hefur skapað sér trausta sérstöðu á sínu sérsviði, sem byggir á öflugri nýsköpun og fyrsta flokks þjónustuveitingu. Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við samruna fyrirtækjanna og hefur lokið meðferð málsins.

„Evolv hefur undanfarin ár drifið sjálfvirknivæðingu fjölda fyrirtækja og stofnanna. Gildi Evolv og  stefna falla mjög vel að sýn Advania og við hlökkum mikið til að vinna í sameiningu að því að fullnýta þau tækifæri sem nýjasta tækni skapar fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania.

„Advania samstæðan stefnir hraðbyr að því að vera leiðandi þjónustuaðili fyrir gervigreind og sjálfvirknivæðingu í Norður Evrópu og byggja kaupin á Evolv undir þá stefnu á Íslandi. Lausnir Evolv hafa nú þegar sannað gildi sitt í umbreytingu innan fjölda fyrirtækja og mun samanlagður kraftur fyrirtækjanna skapa mikið virði fyrir okkar viðskiptavini. Að sama skapi sjáum við fyrir okkur að lausnir Evolv geti þjónustað erlenda viðskiptavini Advania samstæðunnar víðsvegar um Evrópu,“ segir Þórður Ingi Guðmundsson forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania.

Hjá Evolv starfar öflugur hópur um 30 sérfræðinga með sterkan bakgrunn í þróun og víðtæka reynslu af innleiðingu lausna og stuðningi við starfsfólk við að hámarka ávinning sjálfvirknivæðingar. Sérfræðingar Evolv verða hluti af teymi 600 sérfræðinga Advania á Íslandi og flytja í höfuðstöðvar fyrirtækisins í Guðrúnartúni síðar á þessu ári.

„Frá stofnun hefur markmið Evolv verið að hjálpa fyrirtækjum að umbreyta rekstri sínum með sjálfvirknivæðingu og snjallri nýtingu tækni. Með því að sameinast Advania fáum við enn sterkari vettvang til að þróa lausnir okkar áfram, styðja stærri og fjölbreyttari hóp viðskiptavina og nýta þau tækifæri sem felast í þeirri umbreytingu sem nú á sér stað á vinnumarkaði,“ segir Eyþór Logi Þorsteinsson, stofnandi Evolv.

„Við höfum byggt upp einstaka þekkingu og öflugt teymi hjá Evolv og sjáum mikil tækifæri í því að sameina þá sérhæfingu við umfang og innviði Advania. Sameinað fyrirtæki verður í sterkri stöðu til að leiða þróun á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á Íslandi og jafnframt sækja af meiri krafti á erlenda markaði,“ segir Sigurður Davíð Stefánsson, stofnandi Evolv.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.