Blogg - 20. apríl 2026

Kolefnisspor vara nú aðgengilegt í vefverslun Advania

Ásta Maack
verkefnastjóri sjálfbærni hjá Advania

Sjálfbærni snýst ekki bara um markmið heldur líka um aðgerðir, gagnsæi og upplýstar ákvarðanir. Þess vegna erum við hjá Advania á Íslandi afar stolt af því að kolefnisspor er nú sýnt á flestum vörum í vefverslun okkar.

Með því að birta kolefnisspor vara viljum við styðja viðskiptavini okkar í að velja búnað með meiri vitund um loftslagsáhrif og um leið gera sjálfbærnivinnu Advania sýnilegri og aðgengilegri.

Hvað þýðir kolefnisspor vara?

Kolefnisspor vara er birt í kgCO₂e (kílógrömm koltvísýringsígilda). Það er samanburðarhæf mælieining sem tekur saman áhrif mismunandi gróðurhúsalofttegunda í eitt gildi. Þannig verður einfaldara að bera saman loftslagsáhrif ólíkra vara – hvort sem um ræðir tölvur, skjái eða annan tæknibúnað.

Vönduð og gagnsæ aðferðafræði

Á bak við þessar tölur liggur mikil vinna og vönduð aðferðafræði, sem Advania hefur þróað í nánu samstarfi við Kolku.

Útreikningar okkar byggja fyrst og fremst á:

  • Lífsferilsgreiningum (LCA – Life Cycle Assessment) og
  • Product Carbon Footprint (PCF) gögnum frá framleiðendum, þegar slík gögn eru aðgengileg. 

Í þeim tilfellum þar sem framleiðendur hafa ekki birt sértækar LCA- eða PCF-niðurstöður notum við viðurkennda losunarstuðla frá DEFRA og reiknum kolefnisspor út frá þyngd vöru. Þessi nálgun tryggir samræmi, fagmennsku og gagnsæi og byggir á bestu fáanlegu gögnum hverju sinni.

Í dag er kolefnisspor varanna að langmestu leyti byggt á vegnu meðaltali LCA- og PCF-gagna ásamt stöðluðum útreikningum út frá þyngd.

Af hverju er ekki kolefnisspor á öllum vörum?

Við gátum ekki birt kolefnisspor á öllum vörum, einfaldlega vegna þess að þær upplýsingar eru ekki alltaf aðgengilegar hjá framleiðendum. Við tókum þó meðvitaða ákvörðun um að birta kolefnisspor á sem flestum vörum frekar en engum, til að skapa fyrr raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.

Markmiðið er skýrt: 
Að gera upplýsingar um loftslagsáhrif tækjabúnaðar sýnilegri, þannig að bæði viðskiptavinir og almenningur geti tekið upplýstari ákvarðanir og stigið skref í átt að sjálfbærari framtíð.

Þetta er lifandi vegferð

Kolefnisspor vara í vefverslun Advania er ekki lokaafurð, heldur hluti af þróunarvinnu til framtíðar. Við munum uppfæra kolefnisspor árlega, í takt við nýjustu aðgengilegar upplýsingar frá framleiðendum og áframhaldandi þróun á gögnum og aðferðafræði.

Eftir því sem nákvæmari og vörusértækari LCA-gögn verða aðgengileg er stefnt að því að birta enn ítarlegri upplýsingar niður á hverja tegund raftækja.

Ef spurningar vakna um kolefnisspor vara eða aðferðafræðina á bakvið útreikningana er alltaf hægt að hafa samband við mig.

Fleiri fréttir

Blogg
06.02.2013
Hin árlega Citrix Synergy ráðstefna var haldin í Barcelona í lok síðasta árs.
Blogg
30.01.2013
Hvernig eru snjalltækin að birta vefina okkar? Er skalanleg vefhönnun enn ein tískubóla í vefhönnun eða er hún komin til að vera?
Blogg
23.01.2013
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
Blogg
16.01.2013
Hjá Advania hafa verið þróuð tvö tímaskráningarkerfi, Bakvörður og Vinnustund.
Blogg
09.01.2013
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Blogg
12.12.2012
Gæði gagna eru mörgum hugleikin en misjafnt getur verið hversu vel gengur að sigrast á lélegum gæðum gagna.
Blogg
05.12.2012
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Blogg
29.11.2012
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Blogg
22.11.2012
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle kerfið fyrir íslenska ríkið liggur nú fyrir.
Blogg
21.11.2012
Oft er talað um að hjarta fyrirtækis sé birgðirnar. Án birgða flæðir ekki fjármagn inn í fyrirtækið og ef birgðir eru of miklar þá er of mikið fjármagn bundið í birgðunum. Eins mikilvægt og það er fyrir okkur mennina að hugsa vel um hjartað þá gildir það sama um birgðirnar.
Blogg
14.11.2012
Dagana 15. til 17. október hélt þýska fyrirtækið Software AG (SAG) sína árlegu ProcessWorld ráðstefnu í Orlando á Flórida.
Blogg
07.11.2012
Dagsdaglega hugsa fáir um varnaðarorð um notkun snjallsíma. En hver er hin raunverulega áhætta við notkun snjallsíma?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.