Margrét Lárusdóttir kerfisstjóri hjá Advania

- 1. ágúst 2024

Kynnumst kerfisstjórum: Margrét Lárusdóttir

Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu, en hingað til hefur vantað upp á að fleiri konur sæki sér þá menntun sem þarf til að sinna starfinu.

Advania hefur nú farið aftur af stað með átak í samstarfi við NTV og Promennt til að auka áhuga kvenna á kerfisstjórnun, kynna fagið og tryggja að fjölbreyttur hópur sæki sér menntun til að gegna þessu mikilvæga starfi. Tvær konur munu hljóta styrk sem nemur helmingi skólagjalda skólanna fyrir námið. Að þessu tilefni ætlum við að kynna betur nokkra kerfisstjóra hjá Advania.

Hver er bakgrunnur þinn og af hverju fórst þú í kerfisstjórnunarnám?

Eftir að hafa unnið hjá kreditkortafyrirtæki í 25 ár ákvað ég að tími væri kominn til að breyta til. Ég hafði alltaf verið tæknilega sinnuð og var dugleg að koma mér í verkefni sem tengdust tölvukerfum og aðgangsstjórnun. Þegar ég rakst á streymi frá Advania með ákall um fleiri konur í tækni, vakti það áhuga minn. Þarna uppgötvaði ég möguleikann á að læra kerfisstjórnun og skráði ég mig í nám hjá Prómennt.

Hvernig er að starfa sem kerfisstjóri?

Það er stöðugur skóli. Þrátt fyrir að byrja með þekkingu og þjálfun úr náminu þá er lærdómsferlinn rétt að byrja. Tæknin og tölvukerfi eru alltaf á hreyfingu svo að ég er alltaf af læra eitthvað nýtt, bæði gegnum starfið sjálft og í gegnum frekari nám innan Microsoft. Kerfisstjórinn vinnur að því að aðstoða og leiðbeina viðskiptavinum ásamt því að rannsaka og finna lausnir á tæknivandamálum.

Hvaða vandamál eru þið að leysa fyrir viðskiptavini?

Í starfi mínu sem kerfisstjóri í notendaþjónustu Advania er ég í beinum samskiptum við notendur og aðstoða þá með að framkvæma þær tæknilegu breytingar sem beðið er um ásamt því að leysa úr vandamálum sem koma upp. Sem dæmi þá er ég að stofna og gera breytingar á aðgöngum, pósthópum og aðgangshópum í umhverfi fyrirtækja, bæði á netþjónum og í skýjaumhverfinu, aðstoða með vandamál varðandi nettengingar, VPN, tvöfalda auðkenningu, öryggisatvik og ýmis tæknileg vandamál vegna vélbúnaðar.

Hverjir eru kostirnir við þetta starf?

Fyrir lærdómsfúsa og þjónustulundaða grúskara er þetta besta starfið.   Ég fæ að aðstoða og hjálpa fólki á sama tíma og ég þroskast og eflist sem kerfisstjóri. Starfið er mjög fjölbreytt og dagarnir eru aldrei eins. Það eru alltaf að koma upp ný mál og aðstæður sem þarf að vinna með og leysa.

Hvað leiddi þig til Advania?

Advania hefur það orðspor að vera góður vinnustaður og það kom aldrei neitt annað til greina en að senda þangað fyrstu umsóknina mína þegar ég lauk náminu.

Hvernig er stemningin í deildinni?

Deildin mín samanstendur af yndislegu fólki sem tók mér opnum örmum þegar ég byrjaði. Menningin í deildinni byggir á samvinnu og hjálpsemi við hvort annað og  við náum öll vel saman.  Föstudagskaffi og gott félagslíf innan deildarinnar gerir vinnudagana skemmtilega.

Fleiri fréttir

Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.