Blogg - 12. maí 2026

Lítið herbergi, stór upplifun: Advania frumsýnir nýja PanaCast U30 frá Jabra á frábæru verði

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Advania og Jabra frumsýna saman í dag PanaCast U30, glænýjan AllInOne búnað sem færir fyrsta flokks fundaupplifun inn í minnstu fundarherbergin. Þetta er nákvæmlega sá búnaður sem íslensk fyrirtæki hafa verið að bíða eftir og verðið kemur skemmtilega á óvart.

Heimsókn sem kveikti spennuna

Á dögunum fékk teymið okkar í heimsókn Johnny Sønderby Poulsen frá Jabra sem kynnti nýja búnaðinn í eigin persónu. Það þurfti ekki langa kynningu til að sjá að hér er á ferðinni frábært tæki sem getur breytt því hvernig fólk upplifir fjarfundi í litlum rýmum. Það passar líka fullkomið inn í þá vörulínu sem Advania býður íslenskum fyrirtækjum upp á.

Úr kassanum inn á fund á örfáum mínútum

PanaCast U30 er hönnuð sem BYOD-lausn (e Bring Your Own Device). Starfsmenn tengja eigin fartölvu við búnaðinn með einni USB-C snúru og fundurinn er klár. Engar uppsetningar, engin innskráning, engin flækjustig. Á skjánum birtast einfaldar leiðbeiningar áður en tengingin er kláruð, sem þýðir að fyrsti fundur dagsins byrjar á réttum tíma en ekki tíu mínútum of seint vegna tæknivandræða. Algjör draumur.

Búnaðurinn hentar fullkomlega í herbergjum með allt að sex einstaklingum. Samkvæmt nýlegum könnunum eru fyrirtæki um allan heim að fjölga minni fundarýmum til að mæta þörfum nútíma vinnustaðarins og PanaCast U30 er hönnuð einmitt með þá þróun í huga. Hún gerir fyrirtækjum kleift að staðla fundaupplifunina þvert á byggingar og deildir, án þess að þurfa að víkja frá fjárhagsáætluninni.

Sjáðu í vefverslun:

Jabra PanaCast U30 4K myndfundabúnaður

Jabra PanaCast U30 er 4K myndfundabúnaður fyrir lítil fundarherbergi með allt að 6 manns. Býr með 132° sjónsviði, snjallri rammasetningu, 6 hljóðnemum og innbyggðum hátalara. USB-C plug-and-play tenging fyrir BYOD fundi. Ath. Borðstandur fyrlgir ekki

Jabra PanaCast U30 4K myndfundabúnaður

Tækni sem skiptir máli

Myndavélin skilar 4K upplausn með 120° sjónsviði og gervigreind sér sjálfkrafa um að ramma þátttakendur inn og fylgja samtalinu eftir. Það má eiginlega segja að vélin sé eins og hljóðlátur kvikmyndatökumaður í horninu.

Hljóðið er ekki síður eftirtektarverk. Sex hljóðnemar grípa raddir frá öllum hliðum borðsins og innbyggði hátalarinn skilar fullum tvíáttarhljómi.

Uppsetningin er einföld og veggfesting fylgir í kassanum, snúrur fella snyrtilega inn í búnaðinn og myndtáknin á honum leiða uppsetningaraðilann í gegnum ferlið. Fyrir stærri uppsetningar styður búnaðurinn fjarstýringu í gegnum Jabra Plus, sem og staðbundnar uppfærslur.

Fullkomin viðbót við vinsælustu lausnina

Það fer ekki framhjá neinum sem fylgist með fundarherbergislausnum á Íslandi að PanaCast 50 hefur verið ein vinsælasta varan í íslenskum fundarherbergjum. Fyrirtæki um allt land hafa kosið hana fyrir miðlungs og stærri rými og endurgjöfin hefur verið framúrskarandi.

Með tilkomu PanaCast U30 fá viðskiptavinir Advania nú fullkomna heildarlausn, sömu gæði, sama notendaviðmót og sama áreiðanleika í minnstu herbergjunum eins og í stærstu fundarrýmunum. Það þýðir að starfsmenn upplifa engin viðbrigði þegar þeir færa sig á milli herbergja.

Þetta er ekki bara ný vara, þetta er einfaldlega púslið sem vantaði í Jabra vöruframboðið.

PanaCast 50 VBS, MTRoA kerfi með Snertikjá

Jabra Panacast 50 hefur verið ein vinsælasta myndavélin en hér er hægt að fá hana sem Teams Room System ( MTRoA) falleg hönnun bæði á myndaél og snertiskjá. Hentar einstaklega vel í lítil og millistór herbergi þar sem borðið er nálægt skjá.

PanaCast 50 VBS, MTRoA kerfi með Snertikjá

PanaCast U30 er nú að lenda á Íslandi. Viltu tryggja þér búnaðinn strax?

Hafðu samband við Advania til að setja inn forpöntun eða fá ráðgjöf um fundarherbergislausnir sem henta þínu fyrirtæki.

Fleiri fréttir

Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.