Lemon Lin og Sigurgeir Þorbjarnarson.

Blogg - 4. maí 2026

Ný kynslóð heyrnartóla frá Yealink: BH78 lendir á Íslandi

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Lemon Lin frá Yealink kom í heimsókn til okkar á dögunum til að kynna nýjustu heyrnartólin frá fyrirtækinu, Yealink BH78.

Þetta var bæði fróðleg og spennandi heimsókn, ekki síst vegan þess að Yealink hefur á undanförnum árum unnið sér sess sem einn af leiðandi framleiðendum heyrnartóla fyrir fjarvinnu og samskiptalausnir.

BH76 Plus hefur slegið rækilega í gegn

Áður en við snúum okkur að nýjungunum er ekki úr vegi að rifja upp þær miklu vinsældir sem Yealink BH76 Plus hafa notið hér á landi. Þau hafa hreinlega slegið í gegn og það er ekki að ástæðulausu.

BH76 Plus heyrnartólin eru með einstakan eiginleika sem fáir keppinautar bjóða upp á. Heyrnartólin koma nefnilega með bæði on-ear og over-ear púðum sem hægt er að skipta á milli á einfaldan hátt. Heyrnartólin  skynja hvaða púðar eru í notkun og stillir svo hljómburðinn sjálfvirkt eftir því. Þetta gerir þau í raun að tveimur heyrnartólum í einu, léttari heyrnartólum fyrir daglega notkun og þéttari heyrnartólum fyrir hávaðasamara umhverfi og fólk á ferðinni.

Önnur lykilatriði:

  • USB-A og USB-C dongle (sendir) fylgir með heyrnartólunum, svo þau virka með öllum nútíma tölvum.
  • Fimm hljóðnemar með Yealink Acoustic Shield tækni sem eyða bakgrunnshljóðum.
  • Þrjú stig ANC (Active Noise Cancellation) og allt að 35 dB hljóðdempun.
  • Inndraganlegur hljóðnemaarmur sem hverfur þegar hann er ekki í notkun.
  • Allt að 35 klukkustunda taltími og Qi þráðlaus hleðsla.
  • Qualcomm aptX hljóðtækni og Microsoft Teams vottun.

Það er engin furða að þau séu vinsæl og núna eru þau á sérstöku tilboði hjá Advania: Sjá tilboð.

BH78 – ný kynslóð komin í vefverslun

Þá að nýjungunum. Yealink BH78 heyrnartólin lofa sannarlega góðu og við hjá Advania erum með þeim fyrstu í Evrópu til að bjóða þau í sölu: Yealink BH78 with Stand USB-C/A.

Helsta nýjungin er sú að BH78 eru fyrstu samanbrjótanlegu heyrnartólin frá Yealink með földum hljóðnemaarmi sem gerir þau tilvalin fyrir blandaða vinnu þar sem fólk er á ferðinni á vegna vinnunnar eða á flakki á milli skrifstofu, heimilis og funda. Um er að ræða ótrúlega þægileg og þétt heyrnartól sem líta meira út eins og heyrnartól hönnuð fyrir hlustun á tónlist.

Helstu tæknieiginleikar:

•        Adaptive Hybrid ANC sem stillir sjálfkrafa dýpt hljóðdempunar eftir umhverfi.

  • Fjórir hljóðnemar með AI-knúinni hljóðsíun sem dempar allt að 98% bakgrunnshávaða.
  • Vindhljóðdempun fyrir samtöl utandyra.
  • CloudSoft Comfort þægindatækni sem var prófuð á tugum þúsunda andlitsmælinga til að passa yfir 95% notanda.
  • Inndraganlegur hljóðnemaarmur sem var prófaður í 20.000+ snúninga.
  • USB-C/A dongle fylgir með ásamt smekklegum hleðslustandi sem tekur minna pláss en kaffibolli á borðinu hjá þér.

Það sem skiptir kannski mestu máli í faglegu samhengi er að BH78 styðja öll helstu samskiptakerfi, þar á meðal Microsoft Teams og Genesys sem er mikilvægt fyrir þjónustuver og fyrirtæki sem reiða sig á þessar lausnir.

Að lokum

Hvort sem þú ert að leita að áreiðanlegum heyrnartólum sem hafa sannað sig (BH76 Plus á tilboði) eða vilt vera meðal þeirra fyrstu í Evrópu til að taka í notkun nýjustu kynslóðina (BH78), þá er Yealink-línan í Advania að bjóða spennandi kosti fyrir nútíma vinnuumhverfi. Heimsókn Lemon Lin minnti okkur á að samkeppnin í heyrnartólum harðnar stöðugt og notendur njóta svo sannarlega góðs af.

Fleiri fréttir

Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.