Það var fullt út úr dyrum í Guðrúnartúninu

Blogg - 27. október 2026

Opnum hliðin með Genesys

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.

Enn einu sinni í fremstu röð

Byrjum á stóru fréttunum. Genesys var nú valið Leiðtogi í Gartner Magic Quadrant fyrir Contact Center as a Service, tólfta árið í röð. Ekki nóg með það, heldur situr Genesys núna efst allra þegar kemur að getu til að framkvæma (Ability to Execute). Tólf ár í röð er ekki heppni, það er taktur.

Framtíðin er í búningi hljómsveitarstjórn og sjálfvirk gervigreind

Joakim Skalberg Senior Principal Solution Consultant hjá Genesys fór yfir Genesys Orchestration og Agentic AI, þar sem gervigreindin hættir að vera bara svarvél og fer að taka af skarið fyrir hönd fyrirtækja. Hugsaðu þér hljómsveitarstjóra sem heldur öllum hljóðfærunum í takt, nema hér eru hljóðfærin símtöl, spjall, tölvupóstur og allir snertifletir viðskiptavinarins í einu.

Svo var komið að því sem liggur okkur Íslendingum sérstaklega á hjarta: íslenskan. Hún er lítið mál í stórum heimi gervigreindar og það skapar áskoranir. Þar koma nýju verkfærin inn. Með MCP frá Pinkfish, fyrirtæki sem Genesys keypti nýlega, opnast leið fyrir fyrirtæki til að nýta gervigreindina í kerfinu mun betur og markvissar.

Lausn í prófun sem styður íslenskuna

Þá tóku Egill Árni Pálsson frá Advania og Sigurður Gunnar Njálsson frá Careflux við og sýndu lausn sem er núna í prófun. Hún býður upp á live transcript á símtölum, AI samantektir og ýmislegt fleira, beint inn í vinnuflæðið. Við bindum miklar vonir við þessa lausn, einmitt vegna þess að hún er hugsuð til að styðja íslenskuna betur en nokkru sinni fyrr. Þetta er nákvæmlega sú brú milli heimstækni og íslensks veruleika sem viðskiptavinir okkar hafa beðið eftir.

Raunveruleikinn úr þjónustuborðinu

Að lokum steig Þórarinn Þórsson Sviðsstjóri þjónustusviðs VR á stokk og sagði frá því hvernig félagið nýtir kerfið í daglegri þjónustu. Þau nota kerfið meira að segja til að opna hliðin í bókstaflegri merkingu, með símtölum sem opna aðgang að þeim fjölmörgu orlofsbústöðum sem félagið á í kringum landið. Það var dýrmætt að heyra frá fyrstu hendi hvernig góð þjónusta verður enn betri þegar réttu verkfærin eru til staðar. Engin glærusýning toppar raunverulega reynslu þeirra sem nota kerfið á hverjum degi.

Takk fyrir komuna

Þökkum öllum sem mættu, spjölluðu og spurðu. Það var sérstaklega gaman að finna hvað Genesys samfélagið á Íslandi fer stækkandi, og við erum þegar farin að hlakka til næsta fundar.

Fleiri fréttir

Blogg
13.03.2013
Á tímum örra tæknibreytinga í verslunar- og þjónustulausnum þurfa rekstraraðilar að gæta að sambandi sínu við viðskiptavini.
Blogg
05.03.2013
Hér er farið yfir það allra helsta sem til nýjunga horfir í SharePoint 2013.
Blogg
26.02.2013
Þjálfun og fræðsla eru mikilvægir þættir í starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Blogg
20.02.2013
Flest erum við háð tölvunni okkar í leik og starfi og finnst afleitt ef hún bilar. Hér eru fimm einföld ráð til að komast hjá vandræðum.
Blogg
12.02.2013
Hvað einkennir gott launakerfi? Hvernig er hægt að fá sem mest út úr launakerfinu?
Blogg
06.02.2013
Hin árlega Citrix Synergy ráðstefna var haldin í Barcelona í lok síðasta árs.
Blogg
30.01.2013
Hvernig eru snjalltækin að birta vefina okkar? Er skalanleg vefhönnun enn ein tískubóla í vefhönnun eða er hún komin til að vera?
Blogg
23.01.2013
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
Blogg
16.01.2013
Hjá Advania hafa verið þróuð tvö tímaskráningarkerfi, Bakvörður og Vinnustund.
Blogg
09.01.2013
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Blogg
12.12.2012
Gæði gagna eru mörgum hugleikin en misjafnt getur verið hversu vel gengur að sigrast á lélegum gæðum gagna.
Blogg
05.12.2012
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.