Blogg - 20. mars 2026

Power Platform er að breyta leiknum

Sigfús Jónasson
sölustjóri Power Platform og gervigreindar hjá Viðskiptalausnum Advania

Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.

Þessi þróun hefur haft áhrif á atvinnulífið og þurfa fyrirtæki nú að bregðast hraðar við breytingum en nokkru sinni fyrr, þróa lausnir á skemmri tíma og tryggja að tæknin gangi í takt við breytingar í rekstri. Samhliða þessu hefur svokölluðum low-code lausnum vaxið fiskur um hrygg. Þessi þróun er ekki tilviljun en til að efla samkeppnishæfni og auka skilvirkni í rekstri hafa margir horft til þeirra möguleika sem tæknin getur boðið.

Þessar lausnir geta stytt þróunartíma og þannig gert fyrirtækjum kleift að koma fljótt með raunhæfar lausnir á áskorunum. Með þessu lækka einnig aðgangshindranir og verður hugbúnaðarþróun aðgengilegri fyrir breiðari hóp fólks sem jafnvel býr ekki yfir þekkingu og/eða menntun í forritun en þekkir sína viðskiptaferla vel og hvaða áskoranir tengjast þeim. Þegar ávinningurinn er dreginn saman má létta álag á þróunarteymum og upplýsingatæknideildum, efla nýsköpun innan rekstrareininga og byggja betur ofan á gagnadrifna menningu.

Mikilvægur hlekkur stefnumótunar

KPMG kannaði viðhorf fyrirtækja til low-code lausna árið 2024 og töldu 81% fyrirtækja low-code mikilvægan þátt í stefnumótun. Á sama tíma áætlaði Gartner að low-code markaðurinn kæmi til með að vaxa um 14,1% á ári fram til 2029, sem sýnir að greinendur eru að gera ráð fyrir að þessi tækni verði þýðingarmeiri hluti af stafrænni umbreytingu fyrirtækja á komandi árum.

Hvers vegna Power Platform?

Margar low-code lausnir eru í boði en mörg fyrirtæki hafa horft sérstaklega til Microsoft Power Platform, þar á meðal stór hluti Fortune 500 fyrirtækja, en lausnin hefur verið skilgreind sem leiðandi í „Magic Quadrant for Enterprise Low-Code Application Platforms“. Árið 2024 gaf Forrester út grein þar sem ávinningur af Power Platform var metinn og eru niðurstöður í góðu samræmi við það sem áður hefur komið fram í þessari grein – styttri þróunartíma, aukin sjálfvirknivæðing og tímasparnaði. Það sem hefur þó breytt leiknum enn frekar er gervigreind sem hraðar þróun og einfaldar fyrirtækjum að setja fram fjölbreyttar lausnir á hinum ólíku áskorunum. Power Platform sameinar þannig hugbúnaðarþróun, sjálfvirknivæðingu og gervigreind í einu heildstæðu lausnaumhverfi.

Endalausir möguleikar 

Power Platform samanstendur af fimm meginstoðum sem vinna saman í einu vistkerfi: 
•    Power Apps – þróun á öppum 
•    Power Automate – sjálfvirknivæðing ferla 
•    Power BI – greining gagna og hönnun mælaborða 
•    Power Pages – hönnun á ytri vefsíðum
•    Copilot Studio – þróun á gervigreindarlausnum

Að baki þessum verkfærum er Microsoft Dataverse, öflugur og öruggur gagnagrunnur í skýinu, auk á annað þúsund tengimöguleikar (e. connectors) við hin ýmsu kerfi – sem styttir sporin og auðveldar að tengja saman gögn og þjónustur.

Viltu hraða stafrænni þróun?

Á undanförnum mánuðum höfum við átt fjölmörg samtöl við viðskiptavini um einmitt þetta málefni, þar sem markmiðið er að hraða stafrænni þróun, draga úr handvirkum ferlum og auka áherslu á verðmætasköpun. Er þitt fyrirtæki með markmið fyrir þetta ár sem rímar við þessar áherslur? Við höfum mikinn áhuga á að heyra af þeim og skoða hvernig Power Platform getur hjálpað á þeirri vegferð.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.