Power Platform, Blogg - 15. október 2026

Sjálfvirkni og gervigreind fyrir sveitarfélög á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna

Högni Hallgrímsson
forstöðumaður viðskiptalausna hjá Advania

Á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í ár var Advania með bás þar sem við kynntum Power Platform lausnir sem hjálpa sveitarfélögum að einfalda ferla, bæta þjónustu og nýta tíma starfsfólks betur.

Við áttum fjölda samtala og á viðburðinum fundum við fyrir miklum áhuga á því hvernig hægt er að ná skjótum árangri með sjálfvirknivæðingu og gervigreind án þess að ráðast í stór og flókin verkefni.

Sveitarfélög standa frammi fyrir sömu áskorunum og  mörg önnur fyrirtæki og stofnanir: handvirkir ferlar, endurtekin verkefni og vaxandi krafa um hraðari og betri þjónustu. Með lausnum byggðum á Microsoft Power Platform og Copilot Studio er hægt að sjálfvirknivæða fjölmörg verkefni, allt frá samþykktarferlum og innslætti yfir í snjalla erindreka sem svara spurningum, flokka erindi og sækja upplýsingar á öruggan hátt í skilgreind gögn.

Við kynntum einnig nokkrar lausnir sem hafa þegar skilað sveitarfélögum mælanlegum ávinningi, meðal annars stafræna sjálfsafgreiðslu, einfalda umsýslu eigna (Hilla), málakerfi í Sharepoint og lausnir sem draga úr handvirkri vinnslu og tvískráningu.

Markmiðið er einfalt: að losa starfsfólk undan tímafrekum verkefnum svo það geti varið meiri tíma í þjónustu og verðmætasköpun líkt og sveitarfélagið Skagafjörður gerði með þessari lausn: Skagafjörður sparaði 8 klukkustundir á viku með einfaldri sjálfvirkni.

Eitt af því sem vakti hvað mesta athygli var hvernig sveitarfélög geta hafið vegferð sína í gervigreind á öruggan, hraðan og hagkvæman hátt. Þar höfum við sett fram markvissan pakka með skýru leiðarplani: Copilot innleiðing - Advania. Við leggjum áherslu á að byrja á traustum grunni, undirbúa gagnaumhverfið (Varða), koma starfsfólki af stað með Copilot og síðan þróa markvissa gervigreindarerindreka þar sem ávinningurinn bæði skýr og mælanlegur.

Það var skemmtilegt að hitta fulltrúa sveitarfélaga víðs vegar að af landinu og ræða framtíð stafrænnar þjónustu. Við hjá Advania hlökkum til að hjálpa enn fleiri sveitarfélögum að nýta kraft sjálfvirkni, gervigreindar og gagna til að gera reksturinn einfaldari, skilvirkari og þjónustuna betri fyrir íbúa.

Fleiri fréttir

Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Blogg
07.04.2015
Nú eru þrjú ár síðan við Advania bloggið kom fyrst út og er þetta færsla númer 136.
Blogg
31.03.2015
Ný rannsókn frá greiningarfyrirtækinu Gartner sýnir mikla þörf hjá stjórnendum og sérfræðingum á að hafa lykilupplýsingar úr rekstri óháð stað og stund.
Blogg
24.03.2015
Planet Labs hannar, smíðar og rekur stóran flota af örsmáum gervihnöttum sem mynda yfirborð jarðarinnar oftar en áður en hefur þekkst.
Blogg
17.03.2015
Þann 11. mars síðastliðinn opnaði Fræðslusetrið Starfsmennt nýjan og glæsilegan náms- og þekkingarvef.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.