Sævar, Arnar og Valtýr

Fréttir - 1. september 2025

Þrír sérfræðingar ráðnir til innviðalausna Advania

Innviðalausnir Advania selja og þjónusta vélbúnað af öllum stærðum og gerðum í upplýsingatækni. Nú hefur teymið eflst enn frekar með ráðningu þriggja sérfræðinga:

Sævar Ríkharðsson var áður forstöðumaður hjá Sýn og hefur einnig starfað sem vörustjóri hjá Heimkaupum og Hátækni.

„Advania er spennandi þjónustufyrirtæki í fremstu röð. Ég er afar spenntur, enda fengið að kynnast félaginu utanfrá og hlakka mikið til að kynnast því betur sem starfsmaður. Andinn er drífandi og tækifærin mörg. Dell er eitt af stærstu og öflugustu vörumerkjum í heimi og stórt verkefni framundan við að kynna nýja vörulínu fyrir okkar frábæru viðskiptavinum.“

Arnar Þór Kjærnested kemur til Advania frá Endor ehf. sem hann var einn stofnenda af. Hann hefur starfað við vörustjórnun og ráðgjöf á miðlægum búnaði í rúmlega 25 ár, lengst af hjá Opnum kerfum.

„Mér finnst heiður að fá tækifæri til að starfa hjá Advania og verða partur af því öfluga teymi sem þar er að finna og takast á við þær áskoranir sem framundan eru á þessum spennandi vinnustað.“

Innviðalausnir Advania

Við eru sérfræðingar í öllum vélbúnaði sem tengist upplýsingatækni. Allt frá músamottum og lyklaborðum, til ofurtölva og gagnageymsla. Stærsta hluta vöruframboðsins má finna í vefverslun Advania, en einnig eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að veita persónulega ráðgjöf.

Sjáðu græjurnar í vefverslun Advania

Valtýr Gíslason hefur starfað í upplýsingatækni síðan 1995, þá búsettur í Svíþjóð. Hann rak sinn eigin tölvurekstur á Ísafirði í tæp fimm ár. Síðast starfaði hann í 12 ár hjá Origo þar sem hann var m.a kerfisstjóri, vörustjóri, krísustjóri, verkefnastjóri, forstöðumaður og síðast sem rekstrarstjóri

„Það er gaman að hefja störf hjá Advania. Ég hlakka til að nýta þá miklu þekkingu sem ég hef til að hjálpa fyrirtækjum til að ná sínum markmiðum.“

Við bjóðum þessa nýju liðsmenn hjartanlega velkomna til starfa.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.