Blogg - 24. mars 2026

Áskoranir í aðfangakeðju tæknibúnaðar

Valtýr Gíslason
Sölusérfræðingur miðlægra lausna

Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.

Þessi áskorun hefur leitt til minni framboðs á búnaði, lengri framleiðslutíma og óvæntra verðbreytinga. Ástæðurnar eru m.a takmarkanir á hráefni og íhlutum, hækkandi kostnaður við framleiðslu og mjög aukin eftirspurn vegna verkefna tengdum gervigreind, sem þurfa mikið vinnsluminni. Þetta hefur valdið aukinni eftirspurn og framleiðendur og birgjar eru að reyna að anna henni eftir bestu getu. Nánast allir stórir framleiðendur og dreifingaraðilar tæknibúnaðar hafa greint frá erfiðleikum með lagerstöðu og varanlegum verðhækkunum, sem nú þegar hafa haft áhrif á verðlag.

Hvaða áhrif hefur þetta á viðskiptavini?

Þetta er ekki áskorun sem snýr eingöngu að Advania, en allur upplýsingatæknigeirinn finnur fyrir þessu og talið er að staðan haldist svipuð út árið 2026 og jafnvel 2027. Ekki er gert ráð fyrir algjörum skorti á búnaði, en viðskiptavinir mega  búast við skemmri tilboðsfresti, lengri afhendingartíma, verðhækkunum og tíðari verðbreytingum. Afhendingartími ramleiðenda er einnig orðinn ófyrirsjáanlegri, sérstaklega fyrir vinsælan búnað.

Allt þetta gerir skipulagningu í innkaupum á tæknibúnaði mikilvægari en nokkru sinni fyrr.
Viðskiptavinir sem hefja samtal snemma og hafa skýra áætlun fyrir sín innkaup, geta átt von á betra aðgengi að búnaði og fyrirsjáanlegri afhendingu. Verkefni sem eru sett af stað með litlum fyrirvara geta hins vegar staðið frammi fyrir meiri áskorunum við að útvega réttan búnað á réttum tíma.

Hvernig við aðstoðum viðskiptavini

Advania keppist við að upplýsa  viðskiptavini um stöðuna eins fljótt og hægt er, svo hægt sé að aðlaga áætlanir tímanlega. Til að draga úr áhrifum fylgjumst við stöðugt með verði, afhendingartíma og framboði hjá framleiðendum og dreifingaraðilum. Einnig nýtum við náin tengsl okkar við samstarfsaðila í aðfangakeðjunni til að forgangsraða brýnum þörfum viðskiptavina. Ef ákveðinni vöru seinkar eða verð hækkar óeðlilega, þá ráðleggja sérfræðingar okkar um aðrar lausnir eða hjálpa til við að breyta kröfum eða útfærslum þar sem það er mögulegt.

Við leggjum einnig áherslu á að viðskiptavinir skipuleggi framtíðarverkefni og endurnýjun búnaðar með góðum fyrirvara, til að minnka áhættu vegna sveiflna á markaði.
Viðskiptavinir með stærri verkefni eða reglubundna endurnýjun á búnaði eru hvattir til að hafa samband við okkur sem fyrst, svo við getum aðstoðað og veitt ráðgjöf eins og hægt er.

Ef þú ert með fyrirhuguð búnaðarkaup eða vilt fara yfir áætlanir í ljósi aðstæðna á markaði, hafðu endilega samband við sérfræðinga okkar.

Við munum halda áfram að miðla upplýsingum eftir því sem staðan þróast.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.