Fréttir - 16. október 2026

Veffundaröð um netöryggi í Öryggisoktóber

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Í Öryggisoktóber bjóðum við upp á fjóra opna veffundi þar sem netöryggi á tímum gervigreindar er í fyrirrúmi.

Október er tileinkaður netöryggi víða um Evrópu. Öryggisoktóber, eða Evrópski netöryggismánuðurinn (European Cybersecurity Month), er haldinn ár hvert að frumkvæði Netöryggisstofnunar Evrópusambandsins (ENISA) og framkvæmdastjórnar ESB. Markmiðið er að efla vitund fyrirtækja, stofnana og almennings um netógnir og góðar öryggisvenjur. Í ár bjóðum við í Öryggisoktóber upp á veffundaröð þar sem fjallað er um netöryggisseiglu, gervigreind í árásum og vörnum og öryggi í Microsoft 365, meðal annars með reynslusögu frá Sjóvá.

Allir fundirnir eru sýndir á vefnum okkar og dagsetningarnar eru 20. október, 22. október, 27. október og 29. október. Fundirnir hefjast slaginu kl. 10:00 og skráning er ókeypis og öllum opin.

Netöryggisseigla

Netöryggisseigla var meðal lykilviðfangsefna Haustráðstefnu Advania í september, þar sem Guðmundur Arnar Sigmundsson, netöryggis- og gagnaþróunarstjóri Advania, lokaði dagskránni. Við fylgjum því eftir þriðjudaginn 20. október og köfum dýpra.

Netógnir þróast og breiðast út með ógnarhraða, og það gerir seiglu fyrirtækja mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Seiglan snýst ekki bara um að verjast, heldur um að geta haldið starfseminni gangandi jafnvel þótt alvarleg atvik komi upp. Guðmundur Arnar fær til sín Gunnar Smára Agnarsson, ráðgjafa í netöryggi, og saman fara þeir yfir hvernig fyrirtæki byggja upp slíka seiglu.

Gervigreind gegn gervigreind: Ný víglína í netöryggi

Gervigreindin er að breyta veruleikanum í netöryggismálum. Sjálfstýrð gervigreind, svokallaðir agentar, er orðin öflugt árásartæki en nýtist líka í vörnum. Um leið skiptir stafrænt fullveldi sífellt meira máli til að tryggja mikilvæga innviði.

Fimmtudaginn 22. október fara Viðar Pétur Styrkársson, viðskiptastjóri Advania ALT, og Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania, yfir þessa nýju víglínu.

Síðustu 15 prósentin: Raunsæ vegferð að betra öryggi í Microsoft 365

Hvernig lítur vegferð að hærra Secure Score út í raun? Þriðjudaginn 27. október ræðir Einar Örn Einarsson, lausnaarkitekt hjá Advania, við Maurice Zschirp, rekstrarstjóra Sjóvár, sem fór markvisst í að styrkja Microsoft 365 umhverfi fyrirtækisins.

Þeir fara yfir upphafspunktinn, hvaða breytingar skiluðu mestum árangri og hvernig stjórnendur og notendur voru fengnir með. Heiðarlegt spjall um það sem gekk vel, það sem reyndist erfiðara og ráð til þeirra sem vilja hefja sína eigin öryggisvegferð.

Handan Business Premium: Eru öryggismálin tilbúin fyrir tíma gervigreindar?

Microsoft 365 Business Premium veitir traustan öryggisgrunn. Árásaraðilar hafa hins vegar þróast og gervigreindin eykur bæði hraða og fágun netárása.

Á lokafundinum, fimmtudaginn 29. október, fara Arnar Ágústsson, deildarstjóri rekstrarlausna hjá Advania, og Claus Madsen, kerfisverkfræðingur hjá Arrow, yfir hvers vegna lítil og meðalstór fyrirtæki eru orðin eftirsótt skotmörk og hvenær getur borgað sig að stíga skrefið upp í öflugri ógnarvarnir. Það sem ekki sést er ekki hægt að verja. Fundurinn fer fram á ensku undir heitinu Beyond Business Premium: Is your Security ready for the AI era.

Fleiri fréttir

Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Blogg
07.10.2015
Borgir heims stækka ört. Það þarf að bregðast við þessu, til dæmis með breyttu eða nýju skipulagi, og með því að styrkja alla innviði.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.