Blogg - 15. september 2026

Verkada er í skýinu og í skýjunum eftir frábæra Haustráðstefnu

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Haustráðstefnu Advania er lokið og við sitjum eftir með bros á vör. Hliðarviðburðurinn okkar með Verkada, „Blurring Faces, Not the Rules“ eða  „Andlit í móðu en ekki reglurnar“, var vel sóttur, umræðurnar líflegar og viðtökurnar frábærar. Takk til allra sem mættu, kíktu á básinn og tóku þátt í spjallinu. Fyrir þau sem misstu af deginum (eða vilja rifja hann upp) tókum við saman það helsta.

Persónuvernd og öryggi þurfa ekki að stangast á

Rauði þráðurinn í hliðarviðburðinum var einfaldur en mikilvægur: öflugt öryggi og ströng persónuvernd fara fullkomlega saman þegar rétt er haldið á spilunum.

Við rifjuðum upp að persónuvernd á Íslandi byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem innleiða GDPR í íslenskan rétt í gegnum EES-samninginn. Svo fórum við yfir hvernig Verkada mætir þessum kröfum í reynd, meðal annars með dulkóðun alla leiðina: efnið er dulkóðað á myndavélinni sjálfri (AES-128), í flutningi (TLS 1.2) og í skýinu hjá AWS í Evrópu (AES-256). Viðskiptavinir geta jafnvel notað eigin dulkóðunarlykla með ECE.

Og til að tryggja að þetta séu ekki bara orð styðst Verkada við viðurkenndar vottanir: SOC 2 Type 2 og ISO 27001, 27017, 27018 og 27701, ásamt reglulegum öryggisprófunum.

Persónuverndartólin sýnd í beinni

Það sem vakti mesta athygli var hversu áþreifanleg tólin eru. Í stað glæra sýndum við hvernig þetta lítur út í kerfinu sjálfu:

andlitshjúpun bæði á upptökum og í rauntíma á vöktunarstöðvum, persónuverndarsvæði sem hylja tiltekna hluta myndar, stýring á því hvar gögn eru geymd og í hvaða lögsögu þau falla, og opinberar upplýsingar um vöktun með QR-kóða við innganga. Allt saman tól sem rekstraraðilar geta virkjað strax í dag.

Á stóra sviðinu: AI Out of the Machine

Á aðaldagskránni hélt Jon Farkas, Field CTO hjá Verkada, erindið „AI Out of the Machine“ og salurinn var með á nótunum. Erindið skar í gegnum hávaðann í kringum gervigreind og spurði einföldu spurningarinnar sem skiptir máli: er tæknin raunverulega að skila árangri, eða bara að komast í fréttirnar? Einnig fór hann yfir það hvernig gervigreindin er að nýtast í raunöryggisheiminum (e. Physical Security).

Básinn: þar sem kerfið varð áþreifanlegt

Fjölmargir litu við á Verkada-básnum og fengu að sjá kerfið með eigin augum. Þar gátu gestir skoðað lausnina, prófað gervigreindarleitina og rætt sérlausnir fyrir sitt fyrirtæki.

Sérstaka athygli vakti Verkada Helix samþætting Advania við LS Retail og Business Central: hægt er að tengja myndefni beint við færslur, leita að vörum sem hafa verið skannaðar og láta tímastimpil opna myndefnið sjálfkrafa. Þetta er nákvæmlega sú tegund sérlausna sem verður til þegar öflug vara mætir djúpri þekkingu á íslenskum markaði.

Af hverju Verkada með Advania?

Advania er Platinum-samstarfsaðili Verkada, og ástæðan er einföld: lausnin er frábær, hún er skýjadrifin (án NVR-upptökutækja eða netþjóna), hún fær yfir 100 nýja eiginleika á hverju ári og hún vex með þér, þú getur byrjað smátt með einni myndavél og bætt við dyrasímum, aðgangsstýringu, skynjurum og fleiru þegar þér hentar.

Bætið við þekkingu Advania á skýjalausnum, þjónustudeild, þjónustusamningum og reynslu af retail og vettvangsþjónustu, og þá er komin heildarlausn sem heldur utan um öryggi fyrirtækisins frá A til Ö.

Langar þig að sjá meira?

Við erum alltaf tilbúin að setjast niður með viðskiptavinum í fund og þarfagreiningu, og bjóðum upp á 30 daga fría prufu sé þess óskað. Hafðu samband við okkur hjá Advania, þá finnum við út hvernig Verkada getur unnið fyrir þig.

Takk aftur fyrir frábæra ráðstefnu, við hlökkum til að halda áfram með öllum þeim sem vilja kynna sér kerfið betur.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.