Blogg - 13. nóvember 2025

Vertu Pro í þínu hlutverki

Bragi Gunnlaugsson
Sérfræðingur, innviðalausnum Advania

Dell hefur kynnt nýjar fartölvulínur sem eru hannaðar til að mæta ólíkum þörfum á vinnustöðum. Til að einfalda valið eru þrír meginflokkar: Dell Pro, Dell Pro Premium og Dell Pro Max. Hver lína er sérsniðin að mismunandi hlutverkum innan fyrirtækja, og hjálpar starfsfólkinu að vera Pro í sinni vinnu.

Vertu Pro á skrifstofunni

Fyrir starfsmenn sem sinna daglegum skrifstofustörfum, s.s. bókhaldi, þjónustu og almennri vinnu, er Dell Pro fullkominn kostur.

  • Létt og endingargóð hönnun sem þolir álag daglegrar notkunar.
  • Frábær rafhlöðuending og hagkvæm verð.
  • Fáanleg í 14" og 16" skjástærðum með 16:10 hlutföllum.

Þetta er traust tæki fyrir þá sem þurfa áreiðanlega vinnufélaga í hefðbundnum skrifstofuverkefnum. Dell Pro er einnig fáanleg í Dell Pro Plus útgáfum sem býður upp á meira afl, fleiri tengimöguleika og gervigreindarvinnslu.

Við mælum sérstaklega með Dell Pro Plus 14:
404

Vertu Pro í þungu vinnslunni

Fyrir forritara, gagnagreiningarteymi og skapandi sérfræðinga sem vinna með krefjandi forrit og flókna vinnslu er Dell Pro Max tölvan í verkið.

  • Stuðningur við öflug skjákort, allt að NVIDIA RTX 2000 Ada.
  • Hentar fyrir gervigreindargreiningu, myndvinnslu og þung forritunarverkefni.
  • Ný 16" útgáfa er sérstaklega hentug fyrir flóknari vinnslu sem kallar á stærri skjá.

Þetta er vél fyrir þá sem þurfa hámarksafköst og hraða. Pro Max er einnig til í Plus útgáfu sem býður upp á fleiri örgjörva og fleiri tengi, og í stórglæsilegri Premium útgáfu sem er ekki bara öflug, heldur þrælflott.

Vinsælust hjá okkur er Dell Pro Max 14:
404

Vertu Pro á ferðinni

Fyrir stjórnendur, ráðgjafa og sölufólk sem ferðast mikið og þurfa bæði afl og meðfærileika er Dell Pro Premium besti kosturinn.

  • Léttasta vélin í Pro línunni, frá aðeins 1,07 kg.
  • Allt að 21 klukkustunda rafhlöðuending. Fullkomið fyrir langa fundadaga.
  • Vélin er í boði með 5G tengingu. Þannig er bókstaflega hægt að vinna svo til hvar sem er.

Þetta er vél sem sameinar glæsilega hönnun, mikið afl og meðfærileika. Með nýja Tandem OLED skjánum hefur vinnan svo aldrei litið betur út.

Dell Pro Premium í 5G útgáfu er að slá í gegn hjá okkar viðskiptavinum:
404

Eigum við að spjalla saman?

Í vefverslun Advania má finna allt úrvalið af nýju Dell Pro tölvunum. Allt frá einföldum fartölvum, til fullbúinna vinnustöðva. Ef þinn vinnustaður er í leit að fullkomnu vinnutölvunni, eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að aðstoða með valið. Ekki hika við að heyra í okkur og fá tilboð í þín kaup.

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.