Áskorunin
Þessi atburður er miklu stærri og miklu flóknari en allir aðrir atburðir sem hafa komið inn á okkar borð hingað til.
Þessi atburður er miklu stærri og miklu flóknari en allir aðrir atburðir sem hafa komið inn á okkar borð hingað til.
Eftir að við tókum upp Salesforce hættum við alveg að vera með skriflega verkferla, við erum bara með allt rafrænt. Hjartað í starfseminni er að halda utan um meðferð tjónamála.
Áður en atburðirnir hófust hafði NTÍ farið í gegnum útboðsferli þar sem Advania lagði fram tillögu um Salesforce sem lausn. Áhersla var lögð á að velja kerfi sem gæti haldið utan um flókin tjónamál, stutt við skilvirka skráningu og vinnslu ásamt því að þróast með þörfum stofnunarinnar
Við upphaf atburða í Grindavík varð ljóst að hraði og sveigjanleiki skiptu sköpum. Lausnin þurfti að nýtast strax í krefjandi aðstæðum.
Salesforce var innleitt sem nýtt kerfi fyrir utanumhald tjónamála. Lausnin gerði NTÍ kleift að skrá og vinna með tjónamál á skipulagðan hátt, halda yfirsýn yfir málafjölda og stöðu mála og bregðast hratt við auknu álagi.
Þrátt fyrir að kerfið væri ekki fullprófað við upphaf notkunar, reyndist það öflugur grunnur til að takast á við ástandið og styðja við dagleg störf.
Innleiðing Salesforce á þessum tímapunkti gerði NTÍ kleift að bregðast við krefjandi aðstæðum með aukinni skipulagningu og yfirsýn. Stofnunin gat haldið betur utan um tjónamál og unnið markvisst úr þeim, þrátt fyrir aukið álag. Lausnin styrkti viðbragðsgetu NTÍ og lagði grunn að áframhaldandi þróun á stafrænum innviðum stofnunarinnar. Reynslan sýndi mikilvægi þess að hafa sveigjanlegt og öflugt kerfi sem getur staðið undir raunverulegu álagi þegar mest á reynir.
Með innleiðingu Salesforce hefur NTÍ tekið mikilvægt skref í átt að nútímalegra og skilvirkara verklagi í meðhöndlun tjónamála. Lausnin mun halda áfram að þróast og styðja við starfsemi stofnunarinnar í framtíðinni.