Blogg - DD.01.YYYY

Hver er hagræðingin af skýjalausnum?

Þessi færsla á að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér.

Þegar við metum kostnað við rekstur tölvu- og upplýsingakerfa þarf að líta til margra þátta. Tölvurekstur fyrirtækja er oft flókinn og misjafnt hvað stjórnendur vilja telja til kostnaðar á því sviði. Mörg fyrirtæki eru með upplýsingatækniumhverfi eða kerfi sem eru komin til ára sinna. Oftar en ekki eru ferlar hjá fyrirtækjum háð þessum kerfum og lausnum. Hér er þó ekki ætlunin að setja fram tæmandi úttekt á kostnaði við flutning upplýsingatækniumhverfis fyrirtækja í skýið heldur á þessi færsla að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér. 

Mismunandi rekstrarform

Hýsing hjá fyrirtæki: Skrifstofa eða höfuðstöðvar fyrirtækis er með tölvuskáp eða herbergi þar sem tölvukerfi og hugbúnaður er hýstur. 
Hýsing hjá hýsingaraðila: Fyrirtæki tengist einni eða fleiri tölvumiðju. Sækir þjónustu og lausnir til hýsingaraðila og nýtir ýmist vélbúnað hjá honum eða sinn eigin búnað sem hýsingaraðilinn rekur. 

Ský: Fyrirtæki tengist þjónustum hjá hýsingaraðilum í gegnum Internetið. Um er að ræða tölvuumhverfi, hugbúnað eða gagnaveitur sem geta verið hýstar víða um heim. 

 
Deila má um hvar ávinningurinn af skýjalausnum liggur en skoðum nokkra kostnaðarliði:

Kostnaðarliður   Hýsing hjá fyrirtæki Hýsing hjá hýsingaraðila Ský
Leyfiskostnaður
Kaup/leiga Leiga Leiga/innifalið
Vélbúnaður
Kaup Leiga Skv. notkun
Varabúnaður
Kostnaður við kaup x3 Kostnaður við leigu x2 Innifalið
Uppfærslur
Kaup, leiga, skipulag og vinna Vinna Innifalið
Diskar og stýringar
Kaup í stökkum
Kaup/aukning eftir þörfum Innifalið
Gagnamagn
Kaup í stökkum
Aukning eftir þörfum Aukning/innifalið
Rafmagn og kæling
Búnaður + rekstur
Innifalið Innifalið 
Staðsetning
Heima Á Íslandi, oftast á höfuðborgarsvæðinu Erlendis
Niðurhal og flutningur
Innlent Innlent Erlent  
Öryggi Veltur á fjárfestingu og þekkingarstigi Fer eftir hýsingaraðila Öryggi mjög gott en sumt þarf að tryggja sérstaklega
 

Þetta er ekki nákvæm skilgreining, en ég tel þetta nokkuð góða umræðupunkta, sérstaklega út frá því að margir stórir kostnaðarliðir haldast óbreyttir á milli rekstrarforma. Þar má nefna aðlögun, sérlausnir, viðskiptagreind og þjálfun starfsmanna og notenda. 

Aðrir þættir sem skipta máli

Þar sem yfirskrift þessa bloggs er hagræðing í skýjalausnum langar mig til að bæta við sértækum atriðum sem gjarnan gleymast:
  • Aðgangurinn er ávallt yfir Internetið og því má segi að það sé hægt að vinna hvaðan sem er svo framarlega að viðkomandi sé nettengdur
  • Ég tel að tölvutæknin haldi áfram að taka stórstígum framförum, atvinnulífinu til hagsbóta og að skýjalausnir hjálpi sömuleiðis við að fyrirtæki verji meiri tíma og peningum í eigin viðskipti og rekstur
  • Mikill kostur er falinn í því að skýjalausnir gera fyrirtækjum kleift að láta aðra um að uppfæra og reka tölvukerfin. Vilja ekki allir bara opna tölvuna og byrja að vinna strax?

Verðdæmi

Ég lýk þessari bloggfærslu með verðdæmi. Til að einfalda samanburðinn geng ég út frá því að um sé að ræða  nýstofnað fyrirtæki. Ég sleppi kostnaði sem er óháður því hvernig rekstri tölvukerfa er háttað, t.d. einkatölvur og nettengingar. Fyrirtækið er lítið nýsköpunarfyrirtæki með flotta viðskiptahugmynd, forstjóra, markaðsstjóra, aðstoðarmann og einn snilling. Kröfurnar eru einfaldar, allir vinna í öllu (nema snillingurinn sem passar „vöruna“), koma þarf fyrirtækinu á framfæri og fjármagn er af skornum skammti.

 

Hér er það sem þarf:

Skrifstofuhugbúnaður Vefþjónn og viðmót
Bókhald Skjalageymsla
Fjarvinnsla Tölvupóstur
Samstarfsgrunnur Vélbúnaður fyrir sýndarumhverfi

Útreikningurinn

Lokaorð

Þetta blogg er fyrst og fremst skrifað til að vekja athygli á þeim mun sem er á milli mismunandi rekstrarforma. Ráðgjafafyrirtæki eins og til dæmis Gartner telja að framsækin fyrirtæki í örum vexti muni hagnýta skýjalausnir. Íslensk fyrirtæki hafa aðeins haft aðgang að þessum lausnum 1,5 til 2 ár og tengingar við umheiminn hafa valdið óöryggi. Betri tímar eru framundan hvað það varðar. 
 
Við hjá Advania höfum í áratugi hýst fjölbreytt kerfi og flóknar lausnir fyrir íslensk og erlend fyrirtæki og teljum Tölvuskýið vera viðbótartækni öllum til hagsbóta þegar rétt er að staðið.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða þetta nánar eða fræðast örlítið, erum við alltaf með heitt á könnunni og tilbúin að taka á móti einstökum aðilum eða hópum.

Fleiri fréttir

Blogg
17.03.2015
Þann 11. mars síðastliðinn opnaði Fræðslusetrið Starfsmennt nýjan og glæsilegan náms- og þekkingarvef.
Blogg
04.03.2015
Á CES 2015 ráðstefnunni sem haldinn var um daginn átti Dell sterka innkomu með nýju XPS 13 Ultrabook fartölvunni og hefur hún hlotið mikið lof gagnrýnenda.
Blogg
17.02.2015
Það er krefjandi að vera foreldri á tækniöld og margt sem þarf að huga að.
Blogg
11.02.2015
Við hjá Icelandic Group opnuðum á dögunum nýjan vef.
Blogg
04.02.2015
Það stefnir allt í að árið 2015 verði spennandi fyrir okkur í sýndarvélabransanum.
Blogg
28.01.2015
Það er óhætt að segja að NAV bókhaldskerfið hafi tekið stórstígum framförum undanfarin misseri. Nú er komin ný útgáfa af kerfinu, NAV 2015.
Blogg
20.01.2015
Samskiptatækni hefur þróast mikið undanfarin ár og samhliða því þurfa fyrirtæki að huga vel að því hvernig mæta má kröfuhörðum viðskiptavinum.
Blogg
14.01.2015
Í nóvember síðastliðnum fékk undirrituð ásamt tólf öðrum starfsmönnum Advania svokallaða ITIL vottun í þjónustu og rekstri upplýsingatæknilausna.
Blogg
06.01.2015
Greiningafyrirtækið Gartner hefur nýlega gefið út yfirlit yfir þá þætti sem helst munu ráða þróun upplýsingatækni á því ári sem nú er að hefjast.
Blogg
17.12.2014
Síðasta sumar opnuðum við hjá Advania tvö ný gagnaver á Reykjanesi sem eru sérstaklega hugsuð fyrir það sem á ensku kallast High Performance Computing (HPC).
Blogg
03.12.2014
Ég fékk Dell Chromebook 11 tölvu með WiFi tengingu í hendur í október til að prófa.
Blogg
25.11.2014
Stjórnendum fannst oft erfitt að hafa skýra yfirsýn yfir viðveru starfsmanna en með tilkomu Vinnustundar er einfalt að kalla fram lykilupplýsingar.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.