businesscentral.advania.is - 15. maí 2026

Business Central nýjungar – Sjálfvirkni í rekstri og öflugri greiningar

Business Central teymi Advania stóð fyrir morgunverðarfundi þar sem kynnt voru helstu nýjungar í Business Central 2026 Release Wave 1. Fram komu þau Guðrún Jóhannsdóttir, deildarstjóri þjónustu og ráðgjafar í Business Central, Dagný Björk Stefánsdóttir, deildarstjóri þróunar, og Finnbjörn Börkur Ólafsson, ráðgjafi í Business Central.

Á fundinum var farið yfir það sem finna má í nýjustu útgáfu Business Central, þar á meðal sjálfvirkni og nýja möguleika sem fylgja Copilot. Auk þess voru kynntar nýjungar í viðbótum Advania með áherslu á aukna hagræðingu og betri samþættingar við önnur kerfi. Að lokum var farið yfir hvernig hægt er að nýta gögn og greiningartól innan Business Central til að styðja betur við ákvarðanatöku.

Fundurinn fór fram í höfuðstöðvum Advania að Guðrúnartúni 10 í Reykjavík

Nýtt í Business Central (2026 Wave 1)

Microsoft heldur áfram að þróa Business Central í átt að aukinni sjálfvirkni og einfaldari vinnuferlum. Útgáfan inniheldur þó ekki síður mikilvægar nýjungar í skýrslugerð, bættar tengingar við Dataverse og fleiri umbætur sem styrkja bæði gagnavinnslu og samþættingu við önnur kerfi.

Betri aðfangakeðja og birgðastýring

Í nýrri útgáfu eru sérstaklega áberandi umbætur í birgða- og innkaupaferlum:

  • Einfaldara ferli beinnar afhendingar
    • Innkaupapöntun stofnuð beint úr sölupöntun
    • Sjálfvirk tenging milli sölu og innkaupa
    • Kerfið finnur birgja og línur sjálfkrafa
  • Betri vöruupplýsingar
    • Copilot getur tekið saman vöruupplýsingar
    • Myndir og eiginleikar studdir á afbrigðastigi
  • Gæðastjórnun komin inn í kerfið
    • Framkvæma gæðaeftirlit innan Business Central
    • Halda utan um prófanir, niðurstöður og samþykktir
  • Nákvæmari samsvörun í innkaupum
    • Minni handavinna við að tengja línur innkaupareikninga og innkaupapantana.

Sjálfvirkni og gervigreind

Gervigreind er orðinn raunverulegur hluti af daglegum rekstri en á fundinum var sérstaklega farið yfir:

  • Payables Agent
    • Les inn reikninga úr tölvupósti
    • Býr til drög að innkaupareikningi til bókunar
    • Finnur samsvarandi innkaupalínur ef um vörur er að ræða
  • Copilot uppfærður
    • Nýtt líkan (GPT-5.3)
    • Betri stjórn og gagnsæi

Betri upplifun og samþættingar

  • Tengiliðir samstillast við Outlook og Teams
  • Shopify tengingar styrktar (vörur, afbrigði og myndir)
  • Betra notendaviðmót og verkefnayfirsýn fulltrúa (e. Agents)

Skýrslur og yfirsýn

  • Ný Power BI mælaborð (t.d. Customer Retention og ABC greining)
  • Uppfærð fjárhagsskýrslugerð
  • Nútímavæddar birgðaskýrslur

Microsoft heldur áfram að þróa Business Central í átt að aukinni sjálfvirkni og einfaldari vinnuferlum, þar sem AI og Copilot gegna sífellt stærra hlutverki í daglegum rekstri. Nýja útgáfan leggur jafnframt áherslu á bættar aðfangakeðjulausnir, öflugri skýrslugerð og auknar samþættingar.

Nýjungar í viðbótum Advania

Viðbætur Advania bæta við mikilvægu lagi ofan á Business Central og snúa fyrst og fremst að því að einfalda dagleg störf, draga úr handavinnu og tryggja betra flæði gagna. Með viðbótunum er hægt að aðlaga kerfið enn betur að íslenskum aðstæðum og styðja við fjölbreyttar rekstrarþarfir.

Á morgunverðarfundinum var bæði kynnt ný virkni í eldri viðbótum en einnig nýjar viðbætur sem hafa verið gefnar út á markaðstorg Microsoft eða eru væntanlega þar á næstu vikum.

Meðal þess sem hefur verið þróað áfram eru áskriftarreikningarnir, þar sem meiri sveigjanleiki er kominn í uppsetningu og utanumhald sem einfaldar myndun áskriftarreikninga. Samþykktarkerfið hefur einnig verið styrkt með aukinni sjálfvirkni þar sem hægt er að skilgreina reglur fyrir annars vegar sjálfvirka úthlutun samþykktarbeiðna sem og sjálfvirka samþykkt reikninga. Reglurnar byggja á notendum, lánardrottnum eða fjárhagslyklum og með þeim má stytta afgreiðslutíma og minnka handvirk skref. Þá hefur jafnframt verið bætt við meiri stjórn á afsláttum og verðlagningu, þar sem mismunandi dagsetningar geta ráðið því hvernig afslættir eru reiknaðir.

Á sviði daglegs rekstrar og bókhalds hafa viðbætur einnig haft áhrif, til dæmis með Advania greiðslukortainnlestur þar sem kortafærslur starfsmannakorta berast sjálfkrafa frá banka ásamt viðhengjum og öllum upplýsingum um færslu. Í sölu- og afhendingarferlum styðja lausnir á borð við Póststoð og rafræn vörufylgibréf við aukinn rekjanleika og einfaldara flæði, þar sem upplýsingar færast sjálfkrafa á milli skjala og viðhengi vistast beint í kerfinu Að auki hefur verið lögð áhersla á samþættingar og rauntímagagnaflæði, meðal annars með tengingu við Azure Service Bus, Þjóðskrá sem gerir fyrirtækjum kleift að halda gögnum samstilltum milli kerfa með einfaldari hætti.

Nýjar viðbætur og þjónustur, svo sem rafrænar pantanir, afritunarþjónusta og uppfærsluþjónusta, styðja við aukið rekstraröryggi og stöðugleika í daglegum rekstri. Með rafrænum pöntunum einfaldast móttaka og úrvinnsla gagna en þessi nýja lausn býður upp á möguleikann á að taka á móti pöntunum með sama hætti og rafrænum reikningum, í gegnum Skeytamiðju Advania. Afritunarþjónustan tryggir örugga varðveislu gagna í samræmi við kröfur og bókhaldslög. Uppfærsluþjónustan sér síðan til þess að sérbreytingar haldist virkar og samhæfðar milli útgáfa, sem dregur úr áhættu og einfaldar viðhald kerfisins til lengri tíma.

Greiningarleiðir: Frá gögnum til ákvarðana

Í þriðja erindi fundarins fór Business Central ráðgjafinn Finnbjörn yfir hvaða leiðir megi nota til að greina gögn í Business Central en kerfið safnar og geymir mikið magn gagna sem mynda grunninn að allri greiningu - þar á meðal bókaðar færslur, víddir og fjárhagslykla. Þessi gögn má síðan nýta áfram í ólíkum greiningartólum til að fá betri yfirsýn og dýpri skilning á rekstrinum.

Innbyggðar skýrslur í Business Central veita fljótlega og aðgengilega innsýn, þar sem meðal annars má finna prófjöfnuð, aðalbók, aldursgreindar kröfur og stöðulista. Fyrir ítarlegri greiningu er fjárhagsskýrslugerð (Financial Reporting) öflugt verkfæri innan kerfisins, þar sem skýrslur eru byggðar upp með línum og dálkum og hægt er að vinna með víddir til að fá nákvæmari mynd af rekstrinum. Þar hafa einnig bæst við nýir möguleikar, svo sem sjálfgefnar stillingar, betra utanumhald um skýrslur, víddargreining og tímastilltar keyrslur.

Fyrir enn sveigjanlegri greiningu má nýta Analysis Mode og Analysis View, þar sem hægt er að vinna beint með færslur, setja upp pivot-sýn og fylgjast reglulega með lykilgögnum. Að auki opnast frekari möguleikar með Power BI og Excel, þar sem Power BI nýtist fyrir mælaborð og dýpri innsýn, á meðan Excel hentar vel til frekari úrvinnslu og sértækrar greiningar.

Fleiri fréttir

Blogg
24.06.2019
Ein af vinsælustu tilvitnunum stjórnunarfræðanna er höfð eftir Peter Drucker: Culture eats strategy for breakfast.
Blogg
13.06.2019
Kristján H. Hákonarson, forstöðumaður öryggis og persónuverndar hjá Advania fer stuttlega yfir eðli álagsárása og hvernig hægt er að sporna við slíkum árásum
Microsoft, Blogg
22.05.2019
Fimm mikilvægir eiginleikar Teams sem auka sveigjanleika og veita þægindi í vinnuumhverfi starfsmanna.
Blogg
10.05.2019
Hvað getur sagan kennt okkur um fjórðu iðnbyltinguna? Það skyldi þó aldrei vera að sagan endurtaki sig eða við gætum lært af henni? Að ný tækni taki ekki almennilega á sprett fyrr en hún hefur náð ákveðinni lágmarks viðspyrnu.
Blogg
09.05.2019
Notendur Windows 7, Office 2010, SQL 2008/R2 og Windows Server 2008/R2 þyrftu að gera ráðstafanir í tengslum við að Microsoft hættir stuðningi við þessar útgáfur á næstunni.
Blogg
06.05.2019
Ef vinur þinn segir þér að þú hafir sent undarlegan tölvupóst eða sett skrýtin innlegg á samfélagsmiðla sem þú ert ekki líklegur að gera, þá ættu viðvörunarbjöllur að hringja Líklegast hefur einhver komist inn á reikninginn þinn án þess að þú tækir eftir því.
Blogg
30.04.2019
Rafrænt kosningakerfi sem þróað er af Advania, er vel í stakk búið til að annast þjóðaratkvæðagreiðslu. Kerfið nýttist vel í kosningum um Lífskjarasamningana og sparaði stéttarfélögum landsins tugi milljóna.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar kemur að útvistun á tölvuumhverfi er mikilvægt að velja öflugan og áreiðanlegan þjónustuaðila. Með rekstrarþjónustu Advania sjá sérfræðingar okkar um daglegan rekstur upplýsingakerfa, þjónustu við notendur og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar tengingin skiptir öllu máli, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar þú ert með mikilvæga bókun, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Advania er bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands. Advania vill auðvelda úrlausn á þeim fjölmörgu flóknu tæknimálum sem Knattspyrnusambandið stendur frammi fyrir og gera því kleift að einbeita sér að sínu sérsviði, fótbolta.
Myndbönd
04.04.2019
Hér má heyra hvernig Friðrik Heiðar Blöndal upplýsingatæknitækistjóri Ölgerðarinnar hefur upplifað alrekstrarþjónustu Advania.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.