04.02.2025
Wi-Fi 7 – Næsta skref í þráðlausri þróun
Í yfir 20 ár hefur Wi-Fi tæknin haldið heiminum tengdum og fylgt sívaxandi þörfum fyrirtækja og notenda. Nú eru þráðlaus netkerfi mikilvægari en nokkru sinni fyrr, og með Wi-Fi 7 er tekin enn stærri skref í átt að hraðari, stöðugri og afkastameiri nettengingum.
Vignir Benediktsson
Sérfræðingur hjá Advania
Hvað gerir Wi-Fi 7 sérstakt?
- Hraðari nettenging: Wi-Fi 7 byggir á nýsköpun Wi-Fi 6 og Wi-Fi 6E og tekur hana enn lengra. Með stuðningi við 320 MHz rásabreidd og 4K-QAM mótun getur Wi-Fi 7 skilað margfalt meiri hraða en fyrri kynslóðir.
- Stöðugari tengingar: Með Multi-Link Operation (MLO) getur Wi-Fi 7 nýtt mörg tíðnisvið samtímis, sem dregur úr truflunum og eykur áreiðanleika. Þetta er sérstaklega gagnlegt í umhverfi með margar nettengingar, þar sem fyrri kynslóðir Wi-Fi hafa oft átt í erfiðleikum með stöðugleika.
- Fleiri tæki á sama tíma: Wi-Fi 7 er hannað fyrir umhverfi þar sem sífellt fleiri tæki tengjast netinu. Með betri rásastjórnun og aukinni afkastagetu tryggir Wi-Fi 7 stöðuga og hraða tengingu fyrir fleiri notendur og tæki, án þess að nettengingin verði hægari eða óstöðug.
Er tími til að uppfæra?
Wi-Fi 7 er enn í upphafi innleiðingar, en fyrstu fyrirtækin eru þegar farin að nýta sér þessa tækni. Hjá Advania höfum við nú þegar selt hundruð Wi-Fi 7 aðgangspunkta og séð hvernig fyrirtæki undirbúa sig fyrir þessa þróun.
Til að njóta fulls ávinning af Wi-Fi 7 þurfa fyrirtæki að yfirfara netinnviði sína. Öflugri aðgangspunktar kalla á hraðari tengingar, sem þýðir að oft þarf að uppfæra netbúnað sem styður aukna bandbreidd og afköst.
Þróunin í Wi-Fi heldur áfram – spurningin er, hvenær ætlar þú að taka næsta skref?