Veeam eykur gagnaöryggi verulega

Mikill vill meira
Eins og gjarnan vill gerast þegar fyrsta útgáfa vel heppnaðra tækninýjunga kemur á markað þá vilja notendur meira. Algengasta spurningin sem við höfum fengið er „hvenær ætlið þið að bjóða upp á „VM replication“ sem mætti ef til vill þýða sem „speglun sýndarvéla“ á íslensku. Eins og þið getið ykkur vafalaust til út frá fyrirsögninni á þessari grein þá er „replication“ einmitt í boði í næstu útgáfu af Veeam Cloud Connect.Fyrirtæki varin gegn gagnatapi
„Veeam Cloud Connect Replication“ verður hluti af Veeam Availability Suite v9 og er hraðvirk og örugg skýjalausn sem miðar að því að verja fyrirtæki fyrir gagnatapi þegar rekstráfall dynur yfir. Fyrirtæki og þjónustuaðilar styðjast við svokallaða Disaster Recovery (DR) högun en um er að ræða uppsetningu tölvukerfa og aðferðarfræði til að hámarka uppitíma í nútíma gagnaverum. Það er alkunna að það er dýrt að setja upp og reka slíka högun. Slíkt kallar á tvöföldun á núverandi tölvuumhverfi.Mælt með skýjalausnum
Til að viðhalda rekstraröryggi en sleppa við þennan mikla kostnað mælum við með því að fyrirtæki nýti sér skýjalausnir þar sem aðeins er greitt fyrir þá notkun sem raunverulega fer fram. Í lausninni er örugg SSL/TLS tenging gegnum eitt port til þjónustuaðilans. Óþarft er setja upp flóknar tengingar enda fer öll umferð í gegnum aðeins eitt port.
Full Site Failover er að sjálfsögðu áfram valkostur en nýjung í kerfinu er svokallað Partial Site failover. Þá getur endanotandi tekið hluta af umhverfinu í DR högunina á meðan aðrar sýndarvélar keyra áfram í aðalumhverfinu.
Vörn gegn meiriháttar rekstraráföllum
Diasaster recovery-as-a-service (DRaaS) er án efa ein vinsælasta þjónusta sem Veeam býður. Með Veeam Cloud Connect Replication getur Advania boðið DRaaS fyrir VMware vSphere og Microsoft Hyper-V umhverfi.
Í Veeam er algjör einangrun á milli þeirra viðskiptavina sem eru hýstir á sama vélbúnaði auk innbyggðra netstýringa fyrir allar tegundir af failover.
Heildarlausn með því sem skiptir máli
- Einfalt notendaviðmót og sjálfsafgreiðsla
- Kerfisstjórar losna við nethögunina, sem er yfirleitt stærsti hausverkurinn þegar kemur að uppsetningu á DR umhverfi
- Bandvídd er markvisst spöruð í Veeam lausnum og þjálfun á ný kerfi sparast með „Veeam Cloud Connect Replication“