Frá afhendingu verðlaunanna í Barcelona í dag.

Fréttir - 8. október 2026

Alþjóðleg viðurkenning staðfestir stefnu Advania í gervigreind

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania hefur hlotið verðlaunin Innovation Partner of the Year frá Omdia fyrir gervigreindarstefnu félagsins og þróun Advania ALT. Tilkynnt var um verðlaunin á Canalys Forum EMEA í Barcelona í dag.

Omdia er eitt af leiðandi greiningarfyrirtækjum heims á sviði tækni. Greinendur þess horfðu sérstaklega til samræmdrar gervigreindarstefnu Advania, fjárfestinga í sérþekkingu og innviðum og þess að viðskiptavinir eru þegar farnir að nýta lausnir félagsins. Að mati Omdia er Advania eitt af fyrstu tæknifyrirtækjunum til að sameina þessa þætti í einni lausn.

Kjarninn í stefnunni er Advania ALT, vettvangur sem gerir fyrirtækjum kleift að nýta ólík gervigreindarlíkön á öruggan hátt með fullri stjórn á eigin gögnum. Undanfarið ár hefur Advania jafnframt keypt The AI Framework, Gompute og Evolv og fjárfest í innviðum fyrir gervigreind.

Þegar fyrirtæki færa sig úr tilraunum yfir í víðtæka notkun gervigreindar dugar aðgangur að öflugum líkönum ekki einn og sér. Þau þurfa líka að vita hvar gögnin eru unnin, hvernig notkuninni er stýrt og hvernig kröfum regluverks er mætt. Tæknin breytist auk þess of hratt til að fyrirtæki geti veðjað á eitt líkan í dag og treyst því að það verði rétta svarið á morgun.

Verðlaunin bætast við viðurkenningu Canalys sem Channel Partner of the Year í EMEA árið 2024 og eru staðfesting á þeirri stefnu sem Advania hefur markað sér á sviði gervigreindar.

Fleiri fréttir

Blogg
14.05.2012
Nú í júní mun Dell setja á markað nýjar vélar í OptiPlex fjölskyldunni en slíkar vélar hafa reynst mörgum fyrirtækjum vel.
Blogg
09.05.2012
Gott mannauðskerfi styður við helstu aðgerðir mannauðsstjórnunar og styrkir starfsemi mannauðsdeilda. Með markvissri notkun mannauðskerfa hlýst hagræði og sparnaður.
Blogg
02.05.2012
Mikill áhugi er fyrir hugbúnaði fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Nýverið gaf Advania út ókeypis app fyrir Android stýrikerfið sem sýnir m.a. ódýrasta verðið á bensíni.
Blogg
25.04.2012
Microsoft ráðstefnan Convergence 2012 var haldin í Houston Texas dagana 18. til 21. mars 2012.
Blogg
17.04.2012
Tíminn er dýrmæt auðlind sem vert er að fara vel með. Margir kannast hins vegar við að eyða miklum tíma í að leita að skjölum.
Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.