Hin norska Hege Støre er nýráðinn forstjóri Advania-samsteypunnar.

Fréttir - 13. október 2022

Nýr forstjóri Advania-samsteypunnar

Hege Støre er nýr forstjóri Advania-samsteypunnar sem nú telur yfir 4000 starfsmenn á Norðurlöndunum og í Bretlandi.

Hege Støre er nýr forstjóri Advania-samsteypunnar sem nú telur yfir 4000 starfsmenn á Norðurlöndunum og í Bretlandi.

Hege er þekkt úr norsku viðskiptalífi og hefur 30 ára reynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hún var forstjóri norska fyrirtækisins Visolit sem keypt var af Advania í fyrra og rann inn í samsteypuna. Visolit var leiðandi á sviði upplýsingatækni og skýjalausna á fyrirtækjamarkaði í Noregi og Svíþjóð.

Hege tekur við keflinu af Mikael Noaksson sem hefur verið forstjóri Advania-samsteypunnar í fimm ár. Hann mun starfa áfram að stefnumótun samsteypunnar við hennar hlið, auk þess að taka sæti í stjórn Advania Group.

Hege Støre og Mikael Noaksson.

,,Ég tek auðmjúk og stolt við því verkefni að leiða hið öfluga Advania-teymi inn í framtíðina. Við höldum við áfram á þeirri braut að skapa virði fyrir viðskiptavini okkar með snjallri notkun upplýsingatækninnar. Advania er vel í stakk búið til að aðstoða viðskiptavini sína við netöryggismál og val á lausnum,” segir Hege Støre, nýr forstjóri Advania-samsteypunnar.

,,Það er frábært að fá Hege í þetta hlutverk. Hún býr yfir mikilvægri reynslu úr upplýsingatæknigeiranum og var farsæll stjórnandi Visolit. Undanfarin tvö ár hefur Advania vaxið ört og það er frábært að fá svona öfluga manneskju til að halda um stjórnartaumana. Ég er gríðarlega spenntur fyrir samstarfinu við Hege,” segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi.

Advania-samsteypan byggir á dreifstýrðu fyrirkomulagi þar sem fyrirtækin í hverju landi eru afar sjálfstæð og mannauðurinn vinnur náið með viðskiptavinum. Eftir forstjóraskiptin starfar Advania áfram eftir þeirri hugmyndafræði að veita framúrskarandi þjónustu og gera tæknina mannlega.

Fleiri fréttir

Blogg
16.01.2013
Hjá Advania hafa verið þróuð tvö tímaskráningarkerfi, Bakvörður og Vinnustund.
Blogg
09.01.2013
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Blogg
12.12.2012
Gæði gagna eru mörgum hugleikin en misjafnt getur verið hversu vel gengur að sigrast á lélegum gæðum gagna.
Blogg
05.12.2012
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Blogg
29.11.2012
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Blogg
22.11.2012
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle kerfið fyrir íslenska ríkið liggur nú fyrir.
Blogg
21.11.2012
Oft er talað um að hjarta fyrirtækis sé birgðirnar. Án birgða flæðir ekki fjármagn inn í fyrirtækið og ef birgðir eru of miklar þá er of mikið fjármagn bundið í birgðunum. Eins mikilvægt og það er fyrir okkur mennina að hugsa vel um hjartað þá gildir það sama um birgðirnar.
Blogg
14.11.2012
Dagana 15. til 17. október hélt þýska fyrirtækið Software AG (SAG) sína árlegu ProcessWorld ráðstefnu í Orlando á Flórida.
Blogg
07.11.2012
Dagsdaglega hugsa fáir um varnaðarorð um notkun snjallsíma. En hver er hin raunverulega áhætta við notkun snjallsíma?
Blogg
26.10.2012
Í dag föstudaginn 26. október hefur Microsoft formlega markaðssetningu á Windows 8. Nýtt stýrikerfi Windows RT er komið út og einnig nýjar vélar sem hlotið hafa nafnið Microsoft Surface.
Blogg
17.10.2012
Íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli innleitt Agile og Scrum aðferðarfræði sem orðið hefur til þess að tíminn frá hugmynd að veruleika styttist verulega. En um hvað snýst þessi aðferðarfræði?
Blogg
10.10.2012
Símalausn Advania er skýþjónusta þar sem notendur fá þjónustuna með öruggum hætti í gegnum Internetið.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.