Blogg - 10. mars 2026

Þegar CRM verður grunnurinn að raunverulegri gervigreind

Sigmar Bjarni Sigurðarson

Gervigreind er orðin hluti af stefnu flestra fyrirtækja. Hún á að auka skilvirkni, bæta þjónustu og styðja betri ákvarðanatöku. En ein lykilspurning gleymist oft. Á hvaða gögnum á gervigreindin að byggja? Svarið liggur í CRM.

CRM er skammstöfun fyrir Customer Relationship Management (viðskiptatengslastjórnun). CRM-kerfi er hugbúnaður sem hjálpar fyrirtækjum að halda utan um gögn viðskiptavina á einum stað. Kerfið styður við sölu, þjónustu og markaðsstarf með því að veita yfirsýn, skipulag og betri innsýn í þarfir viðskiptavina.

CRM er grunnstoð fyrir gervigreind

CRM er ekki lengur bara sölukerfi – það er miðlægur gagnagrunnur um viðskiptavini. Þar safnast saman:

  • Gögn yfir viðskiptavini
  • Þjónustusaga
  • Viðskiptasaga
  • Samskipti og erindi
  • Markaðsaga

Þegar þessi gögn eru á einum stað verður CRM kerfið grunnurinn að árangursríkri gervigreind.

Ef gögnin eru dreifð, óstöðluð eða óáreiðanleg getur gervigreind lítið gert en með traustum gagnagrunni getur hún skapað raunverulegt virði.

Salesforce og innbyggð gervigreind

Salesforce hefur byggt gervigreind beint inn í lausnir sínar. Með Einstein og nýjum gervigreindarerindrekum (AI Agents) er hægt að:

  • Greina og forgangsraða sölutækifærum
  • Spá fyrir um líkur á lokun samninga
  • Búa til samantektir úr samskiptum
  • Styðja þjónustufólk með tillögum að næstu skrefum

Gervigreind vinnur á gögnunum í CRM og fylgir skilgreindum ferlum. Hún nýtir viðskiptasögu, þjónustusögu og hegðun til að skila niðurstöðu sem styður starfsmanninn í daglegum störfum.

Erindrekar – vinna hraðar og markvissar

Gervigreindarerindrekar nota grunninn í CRM, vinna á gögnunum og ferlunum og skila þér tillögu eða aðgerð.

Þeir geta undirbúið sölufund, bent á söluábendingu eða dregið saman opið þjónustuerindi á nokkrum sekúndum.

Með erindrekum verður vinna hraðari og skilvirkari – en líka markvissari. Starfsfólk fær meiri tíma í samskipti og verðmætasköpun í stað handvirkrar gagnaúrvinnslu.

Réttur grunnur skapar samkeppnisforskot

Gervigreindin er ekki töfralausn. Hún magnar upp það sem þegar er til staðar.

Þess vegna er fyrsta skrefið ekki að „bæta við gervigreind“, heldur að tryggja:

  • Að gögn séu á einum stað
  • Að ferlar séu skýrir
  • Að CRM sé rétt uppsett

Sem Salesforce partner hjálpum við fyrirtækjum að byggja þennan grunn og nýta síðan gervigreindina til fulls. Gervigreind ofan á sterku CRM er raunverulegt samkeppnisforskot.

Fleiri fréttir

Blogg
24.03.2015
Planet Labs hannar, smíðar og rekur stóran flota af örsmáum gervihnöttum sem mynda yfirborð jarðarinnar oftar en áður en hefur þekkst.
Blogg
17.03.2015
Þann 11. mars síðastliðinn opnaði Fræðslusetrið Starfsmennt nýjan og glæsilegan náms- og þekkingarvef.
Blogg
04.03.2015
Á CES 2015 ráðstefnunni sem haldinn var um daginn átti Dell sterka innkomu með nýju XPS 13 Ultrabook fartölvunni og hefur hún hlotið mikið lof gagnrýnenda.
Blogg
17.02.2015
Það er krefjandi að vera foreldri á tækniöld og margt sem þarf að huga að.
Blogg
11.02.2015
Við hjá Icelandic Group opnuðum á dögunum nýjan vef.
Blogg
04.02.2015
Það stefnir allt í að árið 2015 verði spennandi fyrir okkur í sýndarvélabransanum.
Blogg
28.01.2015
Það er óhætt að segja að NAV bókhaldskerfið hafi tekið stórstígum framförum undanfarin misseri. Nú er komin ný útgáfa af kerfinu, NAV 2015.
Blogg
20.01.2015
Samskiptatækni hefur þróast mikið undanfarin ár og samhliða því þurfa fyrirtæki að huga vel að því hvernig mæta má kröfuhörðum viðskiptavinum.
Blogg
14.01.2015
Í nóvember síðastliðnum fékk undirrituð ásamt tólf öðrum starfsmönnum Advania svokallaða ITIL vottun í þjónustu og rekstri upplýsingatæknilausna.
Blogg
06.01.2015
Greiningafyrirtækið Gartner hefur nýlega gefið út yfirlit yfir þá þætti sem helst munu ráða þróun upplýsingatækni á því ári sem nú er að hefjast.
Blogg
17.12.2014
Síðasta sumar opnuðum við hjá Advania tvö ný gagnaver á Reykjanesi sem eru sérstaklega hugsuð fyrir það sem á ensku kallast High Performance Computing (HPC).
Blogg
03.12.2014
Ég fékk Dell Chromebook 11 tölvu með WiFi tengingu í hendur í október til að prófa.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.