Áskorunin
Vegna umfangs og fjölbreytileika starfseminnar stóð Orkuveitan frammi fyrir þeirri áskorun að halda utan um flókin ferli og tryggja góða yfirsýn yfir reksturinn í heild.
Á sama tíma var mikilvægt að velja lausn sem gæti þróast með fyrirtækinu til framtíðar og stutt við áframhaldandi vöxt og breytingar.
Við vorum að leita að lausn sem myndi halda utan um alla þessa flóknu ferla, en á sama tíma þróast með okkur inn í framtíðina
Við vildum tryggja að lausnin væri innleidd á staðlaðan máta og forðast mikið af séraðlögunum
Nálgunin
Við val á lausn lagði Orkuveitan áherslu á að innleiða staðlaða og sveigjanlega lausn sem myndi lágmarka þörf fyrir sérsniðnar breytingar. Jafnframt var horft til þess að lausnin tengdist þeim kerfum sem þegar voru í notkun innan fyrirtækisins.
Sérstaklega var litið til þess að byggja upp samlegð innan Microsoft Dynamics 365 vistkerfisins, þar sem Orkuveitan nýtti þegar aðrar lausnir úr sömu svítu.
Lausnin
Microsoft Dynamics 365 Finance & Operations varð fyrir valinu, sem hentaði vel þörfum Orkuveitunnar. Lausnin styður við flókið rekstrarumhverfi og gerir Orkuveitunni kleift að halda utan um fjölbreytta ferla.
Með því að velja lausn úr sömu svítu og önnur kerfi fyrirtækisins skapaðist aukinn einfaldleiki og samlegðaráhrif sem auðveldaði samþættingu og styrkti heildaryfirsýn.
Útboðsgögnin voru vegvísir að verkefninu og innleiðingunni á kerfinu sem gerði samstarfið einstaklega vel heppnað.
Niðurstöður og árangur
Innleiðingin hefur gengið vel fyrir tilstilli vegvísisins fyrir verkefnið sem tryggði skýra stefnu, gott skipulag og sameiginlegan skilning á markmiðum.
Lausnin hefur styrkt grunn Orkuveitunnar til að halda utan um flókna starfsemi og skapað betri forsendur fyrir áframhaldandi þróun og umbótum.
Með innleiðingu Dynamics 365 Finance & Operations hefur Orkuveitan styrkt stafræna innviði og lagt grunn að einfaldari og skilvirkari rekstri í framtíðinni.
Þjónustan hjá Advania hefur verið til fyrirmyndar og við finnum að það er mikill áhugi á starfseminni okkar
Útboðsgögnin voru bakbeinið í verkefninu og skilningur Advania á því sem við vildum gera hefur haldist í gegnum allt ferlið.