Frá viðburði Advania og HPE. Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Fréttir - 14. september 2026Framtíð netreksturs í brennidepli á HPE Deep Dive
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Viðburðurinn var haldinn í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni og sérfræðingar HPE sóttu Ísland heim af þessu tilefni, þar á meðal Malte Rudis, Sales Engineer hjá HPE Networking, og Ilpo Mäkinen, AI for Networking Sales Director fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin.
Áherslan var á hvernig sjálfvirkni og gervigreind eru að breyta því hvernig fyrirtæki reka og vakta netkerfi sín. Lausnir á borð við HPE Mist og Marvis gera fyrirtækjum meðal annars kleift að sjálfvirknivæða uppfærslur, greina vandamál fyrr og láta netið sjálft framkvæma ákveðnar aðgerðir innan þeirra marka sem rekstraraðilar setja.
Þróunin snýst ekki aðeins um einfaldari rekstur heldur einnig um öryggi. Eftir því sem árásaraðilar nýta sjálfvirkni og gervigreind í auknum mæli verður geta fyrirtækja til að uppfæra, vakta og bregðast hratt við sífellt mikilvægari.
HPE Deep Dive var einn af nokkrum sérhæfðum hliðarviðburðum sem haldnir voru samhliða Haustráðstefnu Advania 2026, þar sem þátttakendum gafst tækifæri til að kafa dýpra í afmörkuð tæknimálefni með sérfræðingum samstarfsaðila Advania.