Öll innkaup starfsfólks einfaldari með Power Platform

Betri yfirsýn yfir innkaup starfsfólks og utanumhald innkaupaheimilda

Isavia á og rekur flugvelli, bæði Keflavíkurflugvöll og alla innanlandsflugvelli. Yfir 200 einstaklingar innan Isavia hafa innkaupaheimild til að versla hjá yfir 1600 birgjum. Starfsfólk vinnur við fjölbreyttar aðstæður, bæði á skrifstofum og úti á vettvangi.

Nálgunin

Verkefnið hófst á ítarlegri greiningu á innkaupaferlum fyrirtækisins. Markmiðið var að einfalda ferlið, samræma verklag og færa innkaup yfir í stafrænt umhverfi. Áhersla var lögð á að sameina ferla í eina lausn, bæta aðgengi og notendaupplifun, tryggja gagnsæi og rekjanleika og nýta sveigjanlega tækni sem hægt væri að þróa áfram.

Í framhaldinu var metið hvaða lausn gæti best uppfyllt þessar kröfur.

Lausnin

Microsoft Power Platform varð fyrir valinu, sem bauð upp á sveigjanlegt og öflugt „low-code“ þróunarumhverfi. Lausnin gerði Isavia kleift að þróa sérsniðin öpp og vinnuflæði án þess að reiða sig á flókna og kostnaðarsama þróun.

Starfsfólk getur nú framkvæmt innkaup beint í gegnum tölvu eða síma, hvar sem þau eru stödd, hvort sem það er á skrifstofunni, á ferðinni eða við störf úti á vettvangi. Þetta jók aðgengi verulega og tryggði að sama einfalda ferlið væri notað óháð staðsetningu.

Það kom í ljós mjög fljótt þegar við fórum að skoða kerfið að þarna var tækni sem við gátum nýtt okkur, þarna var kerfi sem gat uppfyllt okkar þarfir

Bjarni Jakob Gíslason, deildarstjóra innkaupa hjá Isavia

Niðurstöður og árangur

Innleiðingin skilaði skýrum ávinningi á mörgum sviðum. Innkaupaferlið varð bæði einfaldara og hraðara, þar sem handvirkum skrefum fækkaði og minni tími fór í umsýslu. Sjálfvirknivæðing ferla dró jafnframt úr líkum á mistökum og gerði vinnubrögð samræmdari.

Yfirsýn og stjórnun batnaði verulega, þar sem nú er hægt að sjá innkaup og útgjöld á einum stað með auknu gagnsæi og rekjanleika. Þetta hefur leitt til skýrari stjórnunar á innkaupaheimildum og betri yfirsýnar fyrir stjórnendur.

Frá viðskiptalegu sjónarhorni hefur lausnin stuðlað að skilvirkari ákvarðanatöku, auknum sveigjanleika í rekstri og hraðari innleiðingu breytinga og nýsköpunar. Með innleiðingu Power Platform hefur Isavia þannig lagt traustan grunn að áframhaldandi stafrænum umbótum, þar sem frekari sjálfvirknivæðing og þróun á fleiri ferlum er innan seilingar.

Við fórum að greina innkaupin hjá okkur og komumst að því að það voru 18 innkaupaleiðir sem starfsfólkið okkar var að nota. Með því að taka upp þetta kerfi þá er allt orðið rafrænt og allt utanumhald miklu betra.

Sigurrós Hrólfsdóttir, sérfræðingur í innkaupadeild Isavia

Umbreyttu starfseminni

Microsoft Power Platform er öflug lausn sem gerir fyrirtækjum kleift að umbreyta starfsemi sinni. Hvort sem þörf er á sérsniðnum öppum, sjálfvirku vinnuflæði eða greiningu á gögnum þá býður Power Platform upp á allt sem þú þarft til að ná árangri.

Lækkun á kostnaði

Power Platform getur aðstoðað fyrirtæki við að lækka þróunarkostnað þar sem það býður upp á „low-code“ þróunarumhverfi sem flýtir fyrir þróun á öppum, skýrslum og vefsíðum án þess að þurfa að greiða fyrir dýr þróunarleyfi og vélbúnað.

Sjálfvirknivæðing ferla

Tími þinn er dýrmætur. Með gervigreind er hægt að sjálfvirknivæða mikilvæga en tímafreka ferla - eins og reikningagerð, gagnastjórnun og umsóknareyðublöð - sem þýðir að fólkið þitt þarf aðeins að takast á við undantekningartilvikin.

Hraðari nýsköpun

Að leysa vandamál verður eðlilegur hluti af vinnuflæði þínu. Þegar teymi í mismunandi deildum, eins og starfsmannamálum, fjármálum, markaðssetningu eða þjónustu við viðskiptavini, byrja að umbreyta ferlum sínum, muntu geta framkvæmt breytingar á auðveldari hátt en nokkru sinni fyrr.

Heyrðu í okkur og byrjaðu ferðalagið núna.

Viltu einfalda innkaupaferla í þínu fyrirtæki?

Hafðu samband og við skoðum málið saman.

Kynntu þér möguleika Power Platform