Áskorunin
Vöxtur fyrirtækisins leiddi til þess að eldri ferlar og kerfi fóru að verða ófullnægjandi. Með yfir 120 starfsmenn og sífellt fleiri verkefni varð ljóst að bæta þyrfti utanumhald launa- og mannauðsmála til að tryggja skilvirkni og yfirsýn.
Þörfin var skýr: að draga úr tímafrekri handvinnu, einfalda ferla og veita stjórnendum betri heildarsýn yfir reksturinn.
Með auknum verkefnum og fleira starfsfólki varð fljótt ljóst að tímabært væri að uppfæra og bæta utanumhald launa- og starfsmannamála hjá fyrirtækinu
Skipulagið var skýrt frá upphafi, tímamörk raunhæf og eftirfylgni góð, en vikulegir fundir héldu okkur við efnið.
Nálgunin
Húsheild/Hyrna lagði upp með að finna lausn sem gæti bæði sparað tíma og aukið yfirsýn. Eftir að hafa skoðað mismunandi valkosti var ákveðið að hefja samstarf við Advania og innleiða H3 launa- og mannauðskerfi.
Frá upphafi var lögð áhersla á skýrt skipulag, raunhæf tímamörk og gott samstarf. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við sérfræðinga Advania, með reglulegum fundum og eftirfylgni sem tryggði framgang verkefnisins.
Lausnin
H3 var innleitt sem heildstætt launa- og mannauðskerfi sem styður við daglegan rekstur fyrirtækisins. Kerfið sameinar upplýsingar á einum stað og einfaldar bæði launavinnslu og utanumhald starfsmannagagna.
Innleiðingin gekk hratt og vel fyrir sig. Aðeins rúmum þremur mánuðum eftir að samtalið hófst voru fyrstu launin greidd úr nýja kerfinu. Þrátt fyrir að upphafsvinnan hafi krafist töluverðs undirbúnings, þar sem safna þurfti og skrá inn gögn, gekk það betur en áætlað var með góðri leiðsögn og samvinnu.
Innleiðingin gekk vonum framar og samvinna við Advania var til fyrirmyndar.
Niðurstöður og árangur
Nokkrum mánuðum eftir innleiðingu er Húsheild/Hyrna farin að njóta skýrs ávinnings af nýja kerfinu. Dagleg vinna við launa- og mannauðsmál er einfaldari og tekur minni tíma, á sama tíma og yfirsýn hefur batnað verulega.
Kerfið hefur losað um tíma sem áður fór í handvirka vinnu og gert starfsfólki kleift að einbeita sér að verðmætari verkefnum. Notendavænt viðmót og sjálfvirkni hafa haft jákvæð áhrif á bæði skilvirkni og upplifun.
Reynsla Húsheildar/Hyrnu sýnir hvernig markviss innleiðing á öflugu mannauðs- og launakerfi getur haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja. Með réttum undirbúningi og góðu samstarfi er hægt að ná hröðum og varanlegum árangri.
Kerfið er notendavænt, sparar okkur tíma á svo mörgum sviðum og skapar rými til að sinna betur öðrum verkefnum.
Núna, hálfu ári síðar, erum við virkilega ánægð með þann ávinning sem H3 hefur skilað okkur og ákvörðunina um að velja það sem okkar launa- og mannauðskerfi