Háskólinn í Reykjavík einfaldaði ráðningarferli og stytti tíma með 50skills

Stærsta háskólasamfélag landsins

Háskólinn í Reykjavík er eitt stærsta háskólasamfélag landsins með um 3.700 nemendur og fjölbreyttan hóp starfsfólks, verktaka og doktorsnema. Umhverfið er flókið og margir koma að ráðningum, sem gerir kröfur um skýra ferla og gott utanumhald.

Áskorunin

Áður en 50skills var innleitt var ráðningarferlið flókið og ósamræmt. Margir aðilar komu að hverri ráðningu og ferlar voru ekki nægilega skýrir eða samræmdir. Þetta skapaði aukið álag á mannauðsteymið og gerði utanumhald erfiðara.

Þörf var á að ná betri stjórn á ferlinu frá upphafi til enda, draga úr handvirkri vinnu og tryggja að upplifun bæði umsækjenda og þeirra sem vinna með umsóknir væri einföld og skilvirk.

Við vildum samræma ráðningarnar og ráðningarferlið í heild sinni. Það eru mjög margir sem koma að ráðningunum, bæði starfsfólk, stjórnendur og ytri aðilar.
Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri hjá Háskólanum í Reykjavík
Við vorum að leita að tóli sem er einfalt og með gott viðmót fyrir umsækjendur, en líka einfalt fyrir þá sem eru að vinna með umsóknirnar.
Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri hjá Háskólanum í Reykjavík

Nálgunin

Við val á lausn lagði HR sérstaka áherslu á einfaldleika og gott notendaviðmót. Mikilvægt var að umsækjendur gætu sótt um á einfaldan og fljótlegan hátt, en jafnframt að kerfið styddi vel við þá fjölmörgu aðila sem koma að ráðningarferlinu innan stofnunarinnar.

Áhersla var einnig á að samræma ferla frá A til Ö og tryggja að upplýsingar flæddu sjálfkrafa á milli kerfa, í stað þess að vera skráðar endurtekið.

Lausnin

50skills varð fyrir valinu, sem styður við heildrænt ráðningarferli frá umsókn til onboarding. Kerfið sameinar alla lykilþætti ferlisins og tryggir að upplýsingar séu skráðar einu sinni en nýttar víða.

Með lausninni fyllir umsækjandi út sín gögn í onboarding ferli á meðan stjórnendur bæta við sínum upplýsingum, til dæmis í tengslum við ráðningarsamninga. Allar þessar upplýsingar flæða síðan sjálfkrafa inn í önnur kerfi, svo sem launa- og starfsmannakerfi.

Allar upplýsingar flæða á rétta staði. Það þarf í rauninni bara að pikka einu sinni inn, ekki tvisvar eða þrisvar eins og áður.
Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri hjá Háskólanum í Reykjavík

Niðurstöður og árangur

Innleiðing 50skills hefur skilað mun skýrara og samfelldara ráðningarferli. Með því að sjálfvirknivæða gagnaflæði og samræma verkferla hefur tekist að draga úr handvirkri vinnu og einfalda utanumhald.

Ráðningarferlið er nú ekki aðeins hraðara heldur einnig gagnsærra, sem bætir bæði upplifun umsækjenda og þeirra sem koma að ferlinu innan HR.

Með innleiðingu 50skills hefur Háskólinn í Reykjavík lagt grunn að skilvirkara og nútímalegra ráðningarferli sem styður við áframhaldandi vöxt og þróun.

Viltu einfalda ráðningarferlið í þínu fyrirtæki?

Hafðu samband og við skoðum málið saman.
Kynntu þér Mannauðslausnir Advania